Stykkishólmspósturinn
28. janúar 2012
Söfnunarreikningur orgelsjóðs:  Banki: 0309-13-300336 Kt. 630269-0839

Föstudagur 27. janúar 2012
Fimleikadeild í Snæfelli

 

14. janúar s.l. var haldin fimleikasýning í íþróttahúsinu í Stykkishólmi.  Fimleikadeildin er sú yngsta innan vébanda UMF. Snæfells en næstyngsta er Þríþrautadeildin.  Myndir frá fimleikasýningunni tók María Magnúsdóttir.

 

Meira...


Fimmtudagur 26. janúar 2012
Snæfell gefur ekkert eftir

Snæfell hélt áfram sigurgöngu sinni í deildinni í kvöld þegar liðið sigraði KR 93-94 í Reykjavík og náði þar með að hefna fyrir grátlegt tap gegn KR í bikarnum s.l. mánudag.  Sigurinn var sterkur liðsigur hjá Snæfelli sem sló hvergi af þó liðið hafi misst Jón Ólaf útaf með 5 villur þegar fjórar mínútur voru eftir.  Það voru Pálmi og Ólafur sem tryggðu sigurinn með því að því að skora úr þremur af fjórum vítaskotum á síðustu 13 sekúndunum.  Með sigrinum komst Snæfell upp fyrir ÍR og í 6. sætið.  Snæfell getur komist upp í 5.sætið með sigri í næsta leik sem er gegn Þór Þorlákshöfn hér heima.



Miðvikudagur 25. janúar 2012
Vatnasafnsskáldið Guðrún Eva hlýtur Íslensku bókmenntaverðlaunin

Í dag voru Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 veitt  á Bessastöðum.  Í flokki fagurbókmennta hlaut Guðrún Eva Mínervudóttir verðlaunin fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur og í flokki fræðirita hlaut Páll Björnsson verðlaunin fyrir bókina Jón forseti allur?

Sem kunnugt er starfaði Guðrún Eva hér í Stykkishólmi á fyrstu misserum hin nýopnaða Vatnasafns og var fyrsti rithöfundurinn í rithöfundaíbúð safnsins, á starfslaunum frá Vatnasafninu.



Miðvikudagur 25. janúar 2012
Þorra fagnað á leikskólanum

Það var kátt á hjalla á Bóndadaginn s.l. föstudag í Leikskóla Stykkishólms. Krakkarnir höfðu gert sér Þorrahatta sem þau skrýddust í tilefni komu Þorrans og svo var borinn fram Þorramatur í hádeginu.

Meira...


Miðvikudagur 25. janúar 2012
Orgel vígt í Stykkishólmskirkju

Mynd: Þorsteinn Eyþórsson

Það var bæði margt um manninn og hátíðleiki í loftinu s.l. sunnudag þegar langþráð stund velunnara Stykkishólmskirkju rann upp og nýja pípuorgelið sem sérsmíðað var fyrir kirkjuna var vígt. Góðir gestir komu víða að en vígslubiskupinn á Hólum Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, faðir Sigrúnar heitinnar, Biskup Íslands Hr. Karl Sigurbjörnsson, Philipp Klais og Stefan Hilgendorf frá Klais, Hörður Áskelsson Kantor Hallgrímskirkju, Tómas Guðni Eggertsson fyrrv.organisti Stykkishólmskirkju voru allir viðstaddir og tóku þátt í deginum á einn eða annan hátt.

Meira...


Þriðjudagur 24. janúar 2012
Rafmagnstruflanir í morgun..

Rafmagn fór af Borgarfirði og Snæfellsnesi þegar spennir leysti út í aðveitustöð við Vatnshamra kl. 7:05. Rafmagn  komst fljótlega aftur allt svæðið.
Um kl. 07:50 leysti Reykholtsdalslína út og var rafmagni fljótlega komið að Deildartungu, vinnuflokkur í Borgarnesi hefur verið kallaðu út til viðgerðar.

Meira...


Mánudagur 23. janúar 2012
Snæfell úr leik í bikarnum

Eftir frækilega baráttu og tvíframlengdan leik gegn KR, urðu Snæfellspiltar að játa sig sigraða í kvöld 111-104 í átta liða úrslitum Powerade bikarsins.  Nýju erlendu leikmennirnir þrír hjá KR reyndust Snæfellingum erfiðir, sérstaklega þó Johsua Brown sem skoraði 49 stig en alls voru þeir með 81 stig af 111 stigum KR.  Hjá Snæfelli skoruðu Quincy Hankins-Cole 23/10, Jón Ólafur 22/10, Hall 16, Ólafur 13, Hafþór 13, Pálmi 9/8, Sveinn 8. 





Smelltu hér til að skoða...
Þorri hafinn.. borðar þú þorramat?

Já en bara á Þorranum
Já allt árið
Nei aldrei
Hef smakkað hann, mun ekki borða hann aftur



28. janúar:
- Snæfell - Njarðvík IE-deild kvenna


29. janúar:
- Sunnudagaskóli kl. 11 í Stykkishólmskirkju


31. janúar:
- Miðasala fyrir Þorrablót 18-20


1. febrúar:
- Gönguferð Hebbanna kl. 17

- Miðasala fyrir Þorrablót 18-20


2. febrúar:
- Snæfell - Þór Þorlákshöfn IE-deild karla