Mánudagur 6. september 2010
Fjórða sætið hjá strákunum
Fyrstu æfingamótin sem meistaraflokkar Snæfells taka þátt í fyrir tímabilið eru nú yfirstaðin. Stelpurnar höfnuðu í 2.sæti í Ljósanæturmótinu eftir 23-44 tap gegn KR í úrslitaleiknum. Strákarnir enduðu hinsvegar í 4.sæti á Reykjanes Cup eftir naumt tap 102-104 gegn Keflavík.
Meira...
Sunnudagur 5. september 2010
Evrópski menningarminjadagurinn - European Heritage day
Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn í dag sunnudaginn 5. september. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Magnús A. Sigurðsson minjavörður Vesturlands mun þá halda erindi í Ráðhúsinu í Stykkishólmi sem hann nefnir Neðansjávarfornleifafræði og strandminjar. Hvað má búast við að finna við Ísland?
Fyrirlesturinn hefst klukkan 14:00.
Meira...
Laugardagur 4. september 2010
Stelpurnar í 2.sæti
Snæfellsstelpurnar enduðu í 2.sætinu á hraðmótinu í Reykjanesbæ eftir að hafa unnið Hamar 52-45 í undanúrslitum en tapað svo úrslitaleiknum gegn KR 23-44. Strákarnir töpuðu hinsvegar fyrir Fjölni í gær 95-112. Þeir mæta því Keflavík sem vann Njarðvik í gær með 16 stigum, á morgun í leik um 3.sætið.
Föstudagur 3. september 2010
Fyrsta skólahúsbyggingin í Stykkishólmi
Ágæti lesandi.
Einhverjum kann að þykja það vera að bera í bakkafullan lækinn að skrifa meira um gömul hús í Stykkishólmi.
Nú háttar þannig til að í tengslum við síðustu sveitarstjórnarkosningar hér í Hólminum voru skólabyggingamál ofarlega á baugi og ...
Sjá aðsent efni
Föstudagur 3. september 2010
Fjórðungsþing Vestfirðinga hefst í dag
Fimmtugasta og fimmta Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett á Hólmavík kl. 10.30 í dag, föstudaginn 3. september, þingið mun standa fram á laugardag.
Meira...
Fimmtudagur 2. september 2010
Stykkishólmur fékk aðvörun
Stykkishólmur er eitt þeirra tólf sveitarfélaga sem fengu senda aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu. Það voru sveitarfélög sem eru með skuldir og skuldbindingar yfir 200% af heildartekjum sem fengu aðvörun og er Stykkishólmur þar nr.12 202% yfir heildartekjunum.
Meira...
Fimmtudagur 2. september 2010
Kirkjur Íslands
tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið fimmtánda og sextánda – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi og Hið íslenska bókmenntafélag til útgáfukynningar í safnaðarheimili Stykkishólmskirkju föstudaginn 3. september kl. 17,00.
Meira...