Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Föstudagur 29. janúar 2010
Snæfell safnar GSM símum og fartölvum

Íþróttafélagið Snæfell hyggst hefja nýstárlega fjáröflun sem felst í því að safna gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum í bænum. Þá mun félagið einnig taka á móti stafrænum myndavélum, upptökuvélum og MP3 spilurum. Félagið fær greitt fyrir þau tæki sem safnast en þau eru flutt út í endurnýtingu.

       Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á tækjunum  til viðurkenndra endurvinnslufyrirtækja erlendis sem tryggja endurnýtingu á þeim með ábyrgum hætti. Heilir símar og fartölvur verða nýttir áfram í þróunarlöndum og íhlutir úr ónýtum tækjum verða nýttir í annan búnað. Þá verður spilliefnum úr þeim eytt með löglegum hætti.

       Félagar í Snæfelli munu á næstu dögum ganga í hús og safna búnaði sem er ekki lengur í notkun og vonast þeir til þess að íbúar í Stykkishólmi taki vel á móti þeim; styrki félagið og stuðli að því að gömul raftæki öðlist framhaldslíf.

                                                                                                                                                         Fréttatilkynning