Föstudagur 5. febrúar 2010
Liðsauki til Snæfells
Það mátti ekki tæpara standa með að fá nýjan leikmann til liðsins því síðasti dagur til félagaskipta var í dag. Það mun þó vera hægt að skipta út bandaríkjamönnum áfram. Nýji leikmaðurinn mun ekki vera félaginu dýr enda svo sem ekki úr miklum sjóðum að taka hjá Snæfelli. En vonandi verður hann félaginu styrkur ekki veitir af á lokasprettinum. Leikmaðurinn mun koma á morgun og væntanlega verður hann þá kynntur á heimasíðu Snæfells. Hann mun því varla koma við sögu í Keflavík á sunnudaginn í bikarleiknum þó hann sé væntanlega löglegur í þeim leik.