Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Laugardagur 6. febrúar 2010
Félag leikskólakennara 60 ára – Dagur leikskólans

Dagur leikskólans er í dag en Félag leikskólakennara var stofnađ 6.febrúar 1950 og fagnar ţví sextíu ára afmćli í dag.  Félagiđ var stofnađ af 22 leikskólakennurum sem ţá höfđu útskrifast sem slíkir hér á landi, en ţeir fyrstu útskrifuđust frá Uppeldisskóla Sumargjafar í febrúar 1948. Leikskólakennarar hér í Stykkishólmi tóku forskot á sćluna og héldu upp á daginn í gćr međ foreldrakaffi í leikskólanum. 

Félag leikskólakennara er annađ stćrsta ađildarfélag Kennarasambands Íslands og félagar ţess í dag eru um 2400.

Í tilefni ađ ţessum tímamótum ákvađ stjórn félagsins ađ láta gefa út bók sem sem er einskonar samtímaheimild ţar sem helstu vörđur á leiđ stéttarinnar eru skođađar út frá sjónarhóli ţeirra sem stađiđ hafa í eldlínunni.

Bókaútgáfan Skrudda gefur bókina út og sér um sölu hennar.  Á heimasíđu Skruddu er bókinni lýst međ eftirfarandi hćtti: Í sextíu ár hafa leikskólakennarar átt ríkan ţátt í uppeldi ţjóđarinnar. Stéttin getur rakiđ rćtur sínar til örfárra hugsjónakvenna, sem tóku höndum saman um ađ stofna félag utan um kjarabaráttu fyrstu útskriftarárganga Uppeldisskóla Sumargjafar. Í tímanna rás hefur margt áunnist og breyst, en eitt helst stöđugt: Leikskólakennarar eru fólk sem starfar af hugsjón og metnađi – fólk sem sinnir störfum sem skipta sköpum fyrir samfélagiđ. Spor í sögu stéttar segir sögu leikskólakennara frá sjónarhóli ríflega ţrjátíu máttarstólpa sem tekiđ hafa ţátt í mótun stéttarinnar. Ţetta er lifandi saga, ţar sem stoltiđ skín úr hverri frásögn.

Afmćlis félagsins og útgáfu bókarinnar var fagnađ á sérstökum hátíđarfundi sem haldinn var í Ţjóđmenningarhúsinu í gćr föstudaginn 5. febrúar.  Á fundinum var Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráđherra afhent fyrsta eintak bókarinnar.  

 

                                                                                                    Úr fréttatilkynningu