Mánudagur 8. febrúar 2010
Snæfell sigraði Keflavík öðru sinni á fjórum dögum í gær þegar liðin mættust í undanúrslitum bikarkeppninar í Keflavík. Sigur Snæfells var enn öruggari í gær en á fimmtudaginn 64-90 og með honum tryggði Snæfell sig í úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni þann 20.febrúar.
Eftir jafnan 1.leikhluta þá náði Snæfell yfirhöndinni í 2.leikhluta þar sem góð vörn Snæfells virtist algjörlega slá Keflavík út af laginu. Snæfell vann 2.leikhlutann 8-25 og munurinn því 17 stig 49-66 þegar liðin gengu til hálfleiks. Keflavík klóraði svo örlítið í bakkann í 3.leikhluta en ógnaði aldrei sigri Snæfells sem sigldi 26 stiga sigrinum örugglega í höfn og lokatölur eins og áður sagði
64-90.
Snæfellsliðið lék vel í gær og nýi leikmaðurinn Martins Berkis kom ánægjulega á óvart. Reyndar virkuðu báðir nýju leikmennirnir mjög vel þ.e. sá nýji hjá Keflavík líka og koma örugglega til að verða liðum sínum góður styrkur. Það er erfiðara að finna frambærilega leikmenn þegar komið er á mitt tímabil og ekki síst þegar ekki gefst tími til að skoða markaðinn vel. En Snæfellsliðið virðist hafa dottið í lukkupottinn ef marka má þessar mínútur sem Berkis lék í gær. Það var gaman að sjá Pál Fannar enn og aftur sýna að hann er orðinn stöðugur leikmaður sem hægt er að treysta á, gerir fá mistök í sínum leik og nýtir færi sín vel. Emil hefur þann góða kost sem prýðir góða markaskorara í fótboltanum, er áræðinn, sjái hann opna leið að körfunni þá tekur hann strikið og er óhræddur að fara í sniðskotin og fær oftar en ekki villu, víti nái hann ekki að skora. Jón Ólafur var besti maður Snæfells í gær, hann er örvhentur og því kemur ekkert á óvart að hann brilleri í hverjum leik. Hann hafði lítið fyrir sínum 23 stigum í gær en var að auki með 7 fráköst og 3 stoðsendingar. Í kvöld ræðst það svo hvort það verður Grindavík eða ÍR sem mætir Snæfelli í úrslitaleiknum. Stjarnan er núverandi bikarmeistari en Snæfell vann bikarinn 2008 með yfirburða sigri á Fjölni
109-86. Fimm af þáverandi leikmönnum Snæfells eru enn með liðinu og koma reynslunni ríkari í úrslitaleikinn. Það voru þeir Hlynur (8 stig,18 fráköst, 7 stoðsendingar), Sigurður (30 stig, 5 frák., 3 stoðs.), Jón (7 stig, 2 frk,1stoðs.), Sveinn (lék 2.mín, 0stig, 1frk.), Gunnlaugur (lék 2 mín., 0 stig 1 stoðs).
Grindvíkingar eru líklegri til að sigra í kvöld, þeir virðast loks vera hrokknir í gang á meðan ÍR er í mesta basli. Það er ekki langt síðan að bæði þessi lið unnu bikarinn þ.e. Grindavík vann Keflavík
93-78 í úrslitum 2006 og ÍR vann Hamar
81-83 árið 2007.
Það er sem sagt spennandi tíma framundan, tveir leikir gegn Fjölni og FSu í deildinni áður en að úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni kemur. Því miður eru báðir leikirnir á útivelli, þannig að stuðningshópurinn hér heima þarf að fara langt til æfinga, en kvennaliðið á þó tvo heimaleiki í þessari viku og það ákafalega mikilvæga þ.e. á miðvikdaginn 10.feb. gegn Val og 12.feb. gegn Njarðvík. Þannig að það er upplagt að fara að æfa hrópin og söngvana og jafnframt að finna fram rauðu Snæfellsbolina, húfurnar og treflana til að hafa klára fyrir leikinn í höllinni þann tuttugasta, þannig að rauði liturinn verði allsráðandi eins og hann var í úrslitaleiknum gegn Fjölni 2008.
Leikir meistaraflokks karla fram að úrslitakeppninni í deildinni.