Nú stefnir allt í að kjósendur í Stykkishólmi komi til með að geta valið úr að minnsta kosti þremur framboðslistum í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Sjálfstæðismenn og óháðir eru komnir vel af stað við að móta sinn lista. Félagshyggjufólk hyggur jafnframt á framboð í vor með L-listann eins og í síðustu kosningum og í síðustu viku ákváðu svo Framsóknarmenn að stefna á framboð í komandi kosningunum.
Framsóknarfólk hugnast ekki samstarf með L-listanum að nýju og hyggjast bjóða fram eiginn lista með því fólki sem áhuga hefur á að starfa með þeim í bæjarmálunum og engin þörf að vera flokksbundinn framsóknarmaður til þess eða eyrnamerktur framsóknarflokknum á listanum. Það verður því væntanlega listi í svipuðum dúr og hjá Sjálfstæðismönnum og óháðum. Þannig að nú eru framsóknarmenn að hefja þá vinnu að kanna jarðveginn og hvort fólk sé tilbúið að koma á þeirra framboðslista, takist að manna listann þá munu þeir bjóða fram.