Meðal þeirra sem tilnefnd eru fyrir verkefni sín er Ásta Hermannsdóttir (dóttir Hermanns Guðmundssonar og Sigurlínu Sigurbjörnsdóttur) nemi í fornleifafræði en hún er tilnefnd fyrir verkefni sitt „Fornleifar á eyðidal: Skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal“.
En verkefnin sem eru tilnefnd eru annars þessi:
1. Arfgeng heilablæðing – Ný tilgáta um sjúkdómsmyndun byggð á
rannsókn á genatjáningu sem unnið er af Birni Þór Aðalsteinssyni.
2. Fornleifar á eyðidal: Skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal
sem unnið er af Ástu Hermannsdóttur.
3. Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn sem unnið er af Gunnari Steini
Valgarðssyni.
4. Súrefnismettunar- og hjartsláttarnemi sem unnið er af Ásgeiri
Bjarnasyni.
5. Arctic snack – kartöfluflögur og sölsnakk sem unnið er af Eddu Jónu
Gylfadóttur, Guðrúnu Björk Jónsdóttur, Helgu Björgu Jónasardóttur
og Guðrúnu Hjörleifsdóttur.
Verðlaunin verða, eins og áður sagði afhent í dag við hátíðlega athöfn að Bessastöðum kl.16.