Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Fimmtudagur 25. febrúar 2010
Samtök félagshyggjufólks, L-listinn hóf kosningavinnuna

Bæjarmálafélag L-listans hélt fund í Verkalýðsfélagshúsinu mánudaginn 22. febrúar.  Á fundinum voru lagðar línurnar um þá aðferðarfræði sem fylgja á við að finna og velja fólk á lista félagsins fyrir  bæjarstjórnarkosningarnar í vor. 

       Fundarmenn voru samstíga um að nota sama lýðræðislega fyrirkomulagið og notað var fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006.

       Á næstu dögum verður leitað eftir tilnefningum (sjá nánar í auglýsingu í Stykkishólms-Póstinum í dag) þar sem bæjarbúar geta skilað sínum uppástungum í kassa sem staðsettur verður í húsi Verkalýðsfélags Stykkishólms á opnunartíma skrifstofunnar.  Einnig má koma ábendingum með tölvupósti til Ingveldar Eyþórsdóttur, netfang  ingae@holmarar.com eða Elínar Pálsdóttur, netfang  elin.gudrun@stykk.is.  Þegar listi frambjóðenda liggur fyrir verður forval þar sem bæjarbúum gefst kostur á að velja frambjóðendur framboðsins.  Samhliða mun hefjast málefnavinna. 

       Kosið var í kosningastjórn sem mun vinna með stjórn og bæjarfulltrúum félagsins fyrir kosningarnar.

       Stjórn félagsins skipa Guðmundur Lárusson, Helga Guðmundsdóttir og Elín Pálsdóttir.  Bæjarfulltrúarnir eru Lárus Ástmar Hannesson, Berglind Axelsdóttir og Davíð Sveinsson og í kosningastjórn eru þau Inga Eyþórsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Anna Birna Ragnarsdóttir, Björgvin Guðmundsson og Karl Olgeirsson.

 

                                                                                                      F.h. Bæjarmálafélags Stykkishólms

                                                                                                      Lárus Ástmar Hannesson