Stykkishólmspósturinn
7. september 2010

Fimmtudagur 4. mars 2010
Skólastjórafélagiđ skorar á menntamálaráđherra

Skólastjórafélag Íslands (SÍ) hefur sent Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráđherra áskorun „um ađ ráđuneyti menntamála fylgist náiđ međ rekstri grunnskóla og tryggi grunnskólanemendum í sveitarfélögum í fjárhagskröggum jafnrétti til náms međ inngripi ef ţarf. 

Stjórn Skólastjórafélags Íslands lýsir yfir verulegum áhyggjum af ţví ástandi sem er ađ skapast í nokkrum grunnskólum vegna endurtekins niđurskurđar í rekstri skólanna. Ţetta á viđ um sveitarfélög sem glíma viđ mikla fjárhagsörđugleika.

Stjórn félagsins bendir á eftirlitshlutverk ráđuneytisins og ábyrgđ ţess á ađ börnum og ungmennum sé tryggt jafnrétti til náms, óháđ búsetu í sveitarfélagi. Jafnrćđi í ađgengi ađ góđri grunnmenntun er einn af hornsteinum íslensks samfélags og ţví ber ríkisvaldinu ađ fylgjast međ og grípa inn í ef einstök sveitarfélög megna ekki ađ veita ţá ţjónustu sem íbúarnir eiga rétt á.“

                                                                                                             Fréttatilkynning