Efling Stykkishólms hélt aðalfund sinn á mánudaginn 1.mars. Ný stjórn var kjörin, Gissur Arnarson er formaður aðrir í stjórn eru Svanborg Siggeirsdóttir, Sesselja Pálsdóttir, María Ólafsdóttir og Ragna Eyjólfsdóttir.
Í varastjórn eru Símon Sturluson, Sara Jóhannsdóttir, Ólöf Rún Ásgeirsdóttir, Gyða Steinsdóttir og Högni Högnason. Meðal þess sem rætt voru Dönsku dagarnir og framhald þeirra. Nú mun vera fyrirhugað að ræða við Ungmennafélagið Snæfell til að sjá um framkvæmd þeirra í ár.