Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Þriðjudagur 16. mars 2010
Framboðslisti D-listans fyrir komandi kosningar


Frá v. til h. og upp. Björn Ásgeir Sumarliðason, Guðlaug Jónína Ágústsdóttir, Gerður Hrund Sigurðardóttir, Valentínus Guðnason, Katrín Gísladóttir, , Eydís Bergmann Eyþórsdóttir, Guðfinna Rúnarsdóttir, Guðfinna Hrefna Arnórsdóttir, Gretar D. Pálsson, Símon Már Sturluson, Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, Íris Huld Sigurbjörnsdóttir. Á myndina vantar Hlyn Elías Bæringsson og Símon B. Hjaltalín.

Framboðslisti D-listans, sjálfstæðismanna og óháðra fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 29. maí n.k. var lagður fram og samþykktur á almennum fundi á Narfeyrarstofu sunnudagskvöldið 14. mars. Þrír af fjórum efstu frambjóðendum eru nýir á lista en svo á einnig við um helming listans. Á honum blandast því bæði reynsla og ferskleiki. Jafnt kynjahlutfall er á listanum og breiður aldurshópur. Gretar D. Pálsson forseti bæjarstjórnar mun leiða listann og mun ásamt öðrum er mynda hópinn stýra málefnavinnu í átt að metnaðarfullri og ábyrgri stefnuskrá.   
       Kjörnefnd vann nú eftir nýrri leið við uppstillingu sem fólst í ábendingaferli, könnun og reglum sem nefndinni var gert að taka tillit til. Ánægjulegt var hversu margir gáfu kost á sér og voru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Kjörnefnd þakkar þeim sem þátt tóku og hvetur fólk til að bjóða fram krafta sína í þeirri málefnavinnu sem framundan er. Mikilvægt er að sem flest sjónarmið nái að koma fram.

 

Á D-listanum fyrir næstu kosningar eru:

 

1. Gretar Daníel Pálsson

2. Íris Huld Sigurbjörnsdóttir

3. Guðlaug Jónína Ágústsdóttir

4. Hlynur Elías Bæringsson

5. Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson

6. Eydís Bergmann Eyþórsdóttir

7. Valentínus Guðnason

8. Gerður Hrund Sigurðardóttir

9. Björn Ásgeir Sumarliðason

10. Katrín Gísladóttir

11. Guðfinna Hrefna Arnórsdóttir

12. Símon B. Hjaltalín

13. Guðfinna Rúnarsdóttir

14. Símon Már Sturluson

 

                                                                             F.h. kjörnefndar, Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður.