Grásleppuveiðar hafa gengið vel í ár og veiði við landið aukist um 50% frá fyrri árum samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu. Afurðaverð er mjög gott og fengust t.d. 1.106 kr. fyrir kílóið af grásleppuhrognum þann 3.júní s.l. sem er 42% hækkun frá sama tíma á síðasta ári. Við Stykkishólmshöfn var búið að landa 169.690 kg af hrognum frá 7. apríl til 14.júní, þannig að aflverðmætið er orðið dágott sé miðað við þau verð sem hér eru gefin.