Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Miðvikudagur 16. júní 2010
Ný bæjarstjórn tekin við

Bæjarstjórn hélt sinn 258 fund s.l. mánudag og þar tók nýr bæjarstjórnameirihluti L-listans formlega við. Venju samkvæmt þá var það starfsaldursforseti bæjarstjórnar sem stýrði upphafi fundarins og það er Davíð Sveinsson sem lengst hefur setið í bæjarstjórn af núverandi bæjarfulltrúum, eða allar götur frá 1990. 
     
Fundarstjórn Davíðs stóð ekki lengi því fyrsta verk fundarins var að skipa nýjan forseta bæjarstjórnar og hann er nú Lárus Ástmar Hannesson sem situr jafnframt í bæjarráði ásamt Berglindi Axelsdóttur og Gretari D. Pálssyni.  Eftir skipan Lárusar í embætti forseta bæjarstjórnar tók hann við fundarstjórn og við tók skipan í hinar ýmsu nefndir og embætti á vegum bæjarins.  Þar vakti helst athygli að byggingarnefnd vegna nýbyggingar grunnskólans verður óbreytt og hana mun leiða sem fyrr Gretar D. Pálsson.  Að loknum skipunum í nefndir og embætti tók við ráðning nýs bæjarstjóra og undir þeim lið voru færðar bókanir frá báðum listum þar sem fráfarandi bæjarstjóra Erlu Friðriksdóttur voru færðar þakkir fyrir ánægjulegt og gott samstarf og vel unnin störf sem bæjarstjóri s.l. fimm ár.  Að því loknu var lagður fram ráðningarsamningur Gyðu Steinsdóttur í embætti bæjarstjóra og var hann samþykktur með fjórum atkvæðum meirihluta L-lista en bæjarfulltrúar D-lista sátu hjá.  Nýr bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar er því Gyða Steinsdóttir og var hún boðin velkomin til starfa.  Þá var aðeins eftir að skipa fulltrúa bæjarins á tvo fundi í lok mánaðarins og að því loknu var fundi slitið og ný bæjarstjórn og bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar þar með formlega tekin við.

 

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar 2010-2014 skipa: Davíð Sveinsson, Lárus Ástmar Hannesson og Berglind Axelsdóttir frá L-lista.  Gretar D. Pálsson, Guðlaug J. Ágústsdóttir og Íris Huld Sigurbjörnsdóttir frá D-lista.
Bæjarstjóri Gyða Steinsdóttir.


Bæjarstjóri og bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar 2010-2014. Bæjarstjórnin í tveimur röðum með bæjarstjórann á milli sín. Fremst frá vinstri til hægri og upp. Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, Gyða Steinsdóttir bæjarstjóri, Lárus Ástmar Hannesson, Guðlaug J. Ágústsdóttir, Berglind Axelsdóttir, Davíð Sveinsson, Egill Egilsson og Gretar D.Pálsson.