Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Föstudagur 18. júní 2010
Kerflar og aðgerðir gegn þeim

Á  vegum Stykkishólmsbæjar eru nú hafnar aðgerðir gegn ágengu plöntunum skógarkerfli og spánarkerfli. Kerflarnir, sem gjarnan mynda með tímanum samfelldar breiður sækja í næringarríkan jarðveg, þar á meðal lúpínubreiður, og dreifa sér ört á eigin spýtur. Þeir eru taldir ógn við líffræðilega fjölbreytni því fáar aðrar plöntur þrífast í skugga þeirra. Aðgerðir gegn þeim eru dýrari og erfiðari eftir því sem plönturnar eru útbreiddari, auk þess sem tap á náttúrulegu gróðurfari verður meira. Stykkishólmsbær er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að hefja slíkar aðgerðir í heilu sveitarfélagi.

Tveir menn vinna nú í fullu starfi við aðgerðir gegn ágengum plöntum í Stykkishólmi og hafa þegar þetta er ritað slegið eða stungið upp kerflana alls staðar utan garða og í görðum þar sem samþykki eiganda hefur fengist. Eigendur garða þar sem enn er að finna kerfil eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hlyn í s. 864-5547 eða undirritaðan.

Ekki er einfalt að losna við kerfil fyrir fullt og allt. Hann safnar forða í rót og dugar því ekki einn sláttur. Varanlegasta aðgerðin er að grafa hann upp en þó er talið að endurtekinn sláttur 2-4 sinnum yfir sumarið dragi smám saman mátt úr plöntunni og drepi hana að lokum. Fræforði er sömuleiðis í jörðu en fræ lifa sjaldnast lengur en tvö ár.

Í þessari viku hefst lúpínusláttur og sömuleiðis verður haft samband við eigendur bjarnarklóar um mögulegt samstarf.

Athugasemdum við verkefnið og upplýsingum má koma á framfæri við undirritaðan í s. 898-6638 eða á netfangið  robert@nsv.is.

                                                                          
                                                                                                    Róbert A. Stefánsson Náttúrustofu Vesturlands

Nánari upplýsingar um kerfla o.fl.:

www.nsv.is/skyrslur.htm

www.ni.is/media/midlunogthjonusta/utgafa/Lupinuskyrsla.pdf

www.floraislands.is/blomaval.htm