Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Sunnudagur 20. júní 2010
Lúpínan á Ytri-Höfða: Sláttur hefst mánudaginn 21. júní n.k. kl.18
Í bréfinu árið 2007 var vitnað til samráðs við þjóðgarðsvörð í Skaftafelli á þeim tíma og lagði hann til að Náttúrustofa Vesturlands yrði fengin til að meta útbreiðslu lúpínunnar í landi Stykkishólms og áhrif hennar á plöntulíf.  Varhugavert væri að leyfa lúpínunni að festa rætur í bæjarlandinu þar sem hún skildi eftir sig mjög einhæft lífríki og vær stór varasöm ef kviknaði í henni.   Síðan hefur runnið það mikið vatn til sjávar að Náttúrustofan vann úttekt fyrir Stykkishólmsbæ og í kjölfar hennar var ákveðið að ráðast í það verkefni að hefta útbreiðslu hennar sem og Spánarkerfils, skógarkerfils og bjarnarklóar.  Nú í sumar hefjast aðgerðir vegna lúpinu og kerfils.  Mánudaginn 21. júní safnast saman sjálfboðaliðar úr Lágholti, Silfurgötu og Sundabakka með sláttuorf og hefja slátt.  Þeir sem ekki eiga orf geta fengið lánað á staðnum.  Stykkishólmsbær býður þátttakendum í verkefninu upp á grillmat og drykk.