Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Miðvikudagur 28. júlí 2010
Snæfellingar gegn FH

Víkingur Ólafsvík hefur verið að gera það gott í 2.deildinni í sumar þar sem þeir tróna nú efstir.  En Víkingar hafa ekki síður verið að gera stóra hluti í bikarnum þar eru þeir komnir alla leið í undanúrslitin þar sem mótherjinn verður stórlið FH og sá leikur verður í kvöld á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði kl.19:15. 
    Víkingar skelltu Stjörnunni í síðustu umferð í Ólafsvík en í kvöld verða þeir hinsvegar á útivelli.  Þó Víkingar séu að mæta einum af risunum í íslenskum fótbolta þá mæta þeir fullir sjálfstrausts enda ekki tapað leik í langan tíma og eru taplausir í 26 leikjum í röð.  Þeir hafa skorað mikið af mörkum eða tæp 3 mörk í leik, þannig að velgengni Víkinga er engin tilviljun í bikarnum þó vissulega sé það einstakt að lið í 3ju efstu deild (2.deild) komist svona langt í bikarnum og Víkingar Ólafsvík geta heldur betur stimplað nafn sítt rækilega í bikarsöguna nái þeir í úrslitaleikinn á Laugardalsvellinum.  Leikurinn í kvöld verður því án vafa sá stærsti í sögu félagsins til þessa og spurning hvernig Víkingar tækla þá spennu þegar á torfið er komið á Kaplakrikanum í kvöld.
    Það verður blíðskaparveður í kvöld og því ættu knattspyrnuáhugamenn af Snæfellsnesi að fjölmenna í Krikann og styðja Víkingana.  Snæfellingar hafa verið duglegir undanfarna vetur að styðja lið Snæfells í baráttunni í körfunni og ekki látið slæma færð eða veður hafa áhrif á sig.  Í sumarblíðu og góðri færð er ekkert til fyrirstöðu til að skella sér í Hafnarfjörðinn en það má geta þess að stuðningsmenn Víkings ætla að hita upp fyrir leikinn með því að hittast kl.16:30 á plani Glugga og hurðasmiðjunnar í Hafnarfirði eins og sjá má á heimasíðu Víkinga.
    Hólmararnir Alfreð Már Hjaltalín og Andri Freyr Hafsteinsson verða sem fyrr væntanlega í hópi Víkinga og svo verður að sjálfsögðu Gunnleifur Vignir,Kópavogsbúinn og Hólmarinn með Ólsaragenið í markinu hjá FH.

Sjá einnig fotbolti.net um leikinn: Viðtöl: Við Einar Hjörleifsson markvörð Víkinga, Heimir Guðjónsson þjálfara FH, Brynjar Gauti fyrirliði Víkinga.

Og þá ekki síður bloggsíðu Helga Kristjánssonar, Ólsarans með stóra fótboltahjartað.