Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Fimmtudagur 29. júlí 2010
Krían deyr úr hor
Í ár er þriðja sumarið sem staðið er að rannsóknum á kríum og kríuvarpi á Snæfellsnesi.  Rannsóknin er doktorsrannsókn Freydísar Vigfúsdóttur á Háskólasetri Snæfellsness(HS)  undir leiðsögn Tómasar G. Gunnarssonar vistfræðings og fyrrv. forstöðumanns HS.  Í sumar var bætt við rannsóknarþáttum til að mæla tíðni fæðugjafar frá foreldrum til unga og reyndist tíðni þeirra lág í stóru vörpunum utarlega á Snæfellsnesi.  Bar við að foreldrar gáfu ungum sínum fiðriðldi en aðalfæða kríunnar er sandsíli.  Framleiðsla unga í stóru vörpunum hefur því ekki gengið vel og gengur því á kríustofninn við Ísland af þessum sökum.  Viðkoma unga innarlega á Snæfellsnesi virðist hafa gengið betur en þau eru það smá að þau hafa ekki úrslitaáhrif um viðhald stofnstærðarinnar í heildina litið.  Að sögn Freydísar þá er dapurlegt um að líta í kríuvarpinu t.d. á Rifi, einu af stærstu kríuvörpum landsins, það líkist kirkjugarði!  Í ár er 6. Árið í röð sem sjófuglar sem nýta sandsíli til átu eiga erfitt, segir Freydís að lokum. Kreppan hjá kríunni heldur því áfram.

Ljósm: Róbert Stefánsson Náttúrustofu Vesturlands