Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Fimmtudagur 29. júlí 2010
Kortabók Snæfellsness komin út

Fyrir skemmstu kom út kortabók Snæfellsness. Það eru Ferðamálasamtök Snæfellsness og Framkvæmdaráð Snæfellsness sem standa sameiginlega að útgáfunni. Kortabókin byggir á tveimur útgáfum, annarsvegar korti ferðamálasamtakanna og hinsvegar Green globe bæklingi framkvæmdaráðsins sem gefnar hafa verið út síðustu ár.
       Í bókinni eru kort af öllum þéttbýliskjörnum Snæfellsness, kort af Snæfellsnesi með gönguleiðum og þjónustumerkjum, fróðleikur um Snæfellsnes og listar fyri þjónustu á svæðinu ásamt símanúmerum. Kortabókin er ókeypis og hægt að nálgast eintök víða á Snæfellsnesi en upplagið er 60.000 og er talið að birgðirnar muni duga í 2 ár.
       Lager kortsins verður geymdur hjá Sæferðum og er hægt að setja sig í samband við Sæferðir til að fá bókina í einhverju magni. 
                                                                                         
                                                                                          Fréttatilkynning