Stykkishólmspósturinn
19. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 6. júní 2012
Kvennahlaupið í Stykkishólmi

 

Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar heilsueflingar. Kvennahlaupið höfðar til allra kvenna þar sem hægt er að velja mislangar vegalengdir. Engin tímataka er í hlaupinu og því ekki hlaupið nema til persónulegs sigurs. 

Í ár verður hlaupið í Stykkishólmi og verður hægt að forskrá þátttöku í hlaupið í Heimahorninu en á hlaupadaginn sjálfan verður skráning í Íþróttamiðstöðinni.  Hlaupið hefst kl. 11 og hlaupið frá Íþróttamiðstöð.  ÍSÍ, Rauði kross Íslands og Sjóvá standa fyrir söfnun á brjóstahöldum og öðrum undirfötum í tengslum við hlaupið, en með átakinu vilja aðstandendur hvetja konur sem taka þátt í kvennahlaupinu að láta gott af sér leiða, en reynsla Rauða krossins er sú að fatnaður af þessu tagi skilar sér síður í hefðbundnum fatasöfnunum en annar fatnaður.  Tekið er á móti undirfatnaði við upphaf hlaupsins.  Skráningargjald er kr. 1.250 en allir þátttakendur fá bol og verðlaunapening auk glaðnings frá Nivea og Ölgerðinni og frítt í sund.