Stykkishólmspósturinn
22. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 29. júní 2012
Nýr þjónustuaðili VÍS í Stykkishólmi

Málflutningsstofa Snæfellsnes tekur við sem þjónustuaðili VÍS í Stykkishólmi frá og með 1. júlí 2012 og verður Pétur Kristinsson  þjónustustjóri.

Síðastliðin sjö ár hefur umboðið verið starfrækt í Arion banka og færir VÍS starfsfólki hans þakkir fyrir gott samstarf.

Þjónustuskrifstofa VÍS í Stykkishólmi verður að Aðalgötu 24 og opin frá kl. 10.00- 12.00  og 13.00 – 15.00 alla virka daga. Síminn er 438-1199

Starfsfólk þjónustuskrifstofu VÍS á Akranesi veitir jafnframt hvers kyns aðstoð í síma 560-5075 og þjónustuver VÍS í síma 560-5000.