Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Sunnudagur 5. september 2010
Evrópski menningarminjadagurinn - European Heritage day
Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn í dag sunnudaginn 5. september.  Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Magnús A. Sigurðsson minjavörður Vesturlands mun þá halda erindi í Ráðhúsinu í Stykkishólmi sem hann nefnir Neðansjávarfornleifafræði og strandminjar. Hvað má búast við að finna við Ísland?  Fyrirlesturinn hefst klukkan 14:00. Meira...

Laugardagur 4. september 2010
Stelpurnar í 2.sæti

Snæfellsstelpurnar enduðu í 2.sætinu á hraðmótinu í Reykjanesbæ eftir að hafa unnið Harmar 52-45 í undanúrslitum en tapað svo úrslitaleiknum gegn KR 23-44. Strákarnir töpuðu hinsvegar fyrir Fjölni í gær 95-112.  Þeir mæta því Keflavík sem vann Njarðvik í gær með 16 stigum, á morgun í leik um 3.sætið. 

Föstudagur 3. september 2010
Fyrstu æfingamótin Jón Ólafur með 37 stig

Báðir meistaraflokkar Snæfells í körfunni taka þátt í tveimur æfingamótum í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Bæði liðin léku í gær og maður mótsins í fyrra hjá körlunum Jón Ólafur fór á kostum í fyrsta leik og sallaði niður 37 stigum.Bæði liðin mæta mikið breytt, hafa hvort um sig misst nokkra af sínum máttarstólpum og ekki búið að fylla öll þau skörð enn auk þess sem leikmenn eru enn að glíma við meiðsli.  Meira...

Föstudagur 3. september 2010
Fyrsta skólahúsbyggingin í Stykkishólmi
Ágæti lesandi.  Einhverjum kann að þykja það vera að bera í bakkafullan lækinn að skrifa meira um gömul hús í Stykkishólmi.  Nú háttar þannig til að í tengslum við síðustu sveitarstjórnarkosningar hér í Hólminum voru skólabyggingamál ofarlega á baugi og ... Sjá aðsent efni

Föstudagur 3. september 2010
Fjórðungsþing Vestfirðinga hefst í dag
Fimmtugasta og fimmta Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett á Hólmavík kl. 10.30 í dag, föstudaginn 3. september, þingið mun standa fram á laugardag. Meira...

Fimmtudagur 2. september 2010
Stykkishólmur fékk aðvörun
Stykkishólmur er eitt þeirra tólf sveitarfélaga sem fengu senda aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu. Það voru sveitarfélög sem eru með skuldir og skuldbindingar yfir 200% af heildartekjum sem fengu aðvörun og er Stykkishólmur þar nr.12 202% yfir heildartekjunum. Meira...

Fimmtudagur 2. september 2010
Kirkjur Íslands

 tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið fimmtánda og sextánda – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi og Hið íslenska bókmenntafélag til útgáfukynningar í safnaðarheimili Stykkishólmskirkju föstudaginn 3. september kl. 17,00. Meira...

Laugardagur 28. ágúst 2010
Tryggja þarf fasta búsetu í Flatey

Gríðarlega góð þátttaka var í Eyjaþingi sem Framfarafélag Flateyjar stóð fyrir á Hótel Flatey síðastliðinn sunnudag og sýndi það bæði áhuga og þörf á að ræða málefni Flateyjar og nærliggjandi eyja. Á þingið mættu ábúendur, eigendur sumarhúsa, sveitarstjórnarfólk og fulltrúar stofnana og ferðaþjónustufyrirtækja. Meira...

Laugardagur 28. ágúst 2010
Jarðarfarasena í Hólminum

Að morgni sunnudagsins 29 ágúst verður tekin upp sena í stuttri kvikmynd fyrir framan gömlu kirkjuna í Stykkishólmi. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og leika jarðarfarargesti en þar sem myndin sækir efnivið í atburði sem gerðust á Snæfellsnesi á síðustu öld eru allir beðnir að vera dökkklæddir og alls ekki klæddir samkvæmt nýjustu tísku. Meira...

Föstudagur 27. ágúst 2010
Ha, Siggi Palli hvað

Það er langt á milli skerja hjá Gulla bróðir sagði afi Jónas einhvern tíma þegar verið var að flytja fé á milli eyja og Höskuldur (Gulli bróðir) af óútskýrðum ástæðum setti þá reglu að það fengi enginn að væta úfinn, eins og þeir kölluðu það, ... Sjá aðsent efni.

Föstudagur 27. ágúst 2010
Pólsk - Íslenskar flautur / Íslensk píanó

S.l. þriðjudag héldu flautuleikarninir Áshildur Harldsdóttir og Ewa Murawska eftirmiðdagstónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari var meðleikari þeirra á tónleikum og Atli Heimir Sveinsson lék einnig á píanóið í sínum eigin lögum. Tónleikarnir verða endurteknir í Stykkishólmskirkju laugardaginn 28. ágúst kl. 17 og er aðgangur ókeypis. Meira...

Föstudagur 27. ágúst 2010
Sumarferð fyrrverandi alþingismanna

Árleg sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna var farin um um Snæfellsnes 24. júlí sl. Félagið var stofnað 1986 og er tilgangur þess fyrst og fremst að vera vettvangur fyrrverandi alþingismanna til að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Meira...

Laugardagur 21. ágúst 2010
Aflatölur 27.júlí - 12.ágúst 2010

Föstudagur 20. ágúst 2010
Góð grásleppuvertíð
Grásleppuvertíðinni lauk 12.ágúst og reyndist hún þegar upp var staðið vera mjög góð hér á Breiðafirði og reyndar víðast hvar umhverfis landið.  Alls lönduðu 30 grásleppubátar við Stykkishólmshöfn á vertíðinni og var heildaraflinn 392.105 kg.. Meira...

Fimmtudagur 19. ágúst 2010
Valtýr í víking

Víkingaskútan Valtýr hefur sett mikinn svip á höfnina undanfarin misseri og því hafa margir undrað sig á hvað af henni hafi orðið því hún hefur ekki sést í nokkra daga.  Meira...

Síða 1 af 16: | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16


Breyttur opnunartími haustið 2009 opið virka daga frá 8-17 en laugardaga frá 9-16
Hefurðu skoðað Vatnshellinn í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli?

Nei, ætla fljótlega
Nei, ekki enn



6. september:
- Átak. Þrek og þol - Nýtt námskeið fyrir konur!

- Vatnsleikfimi. Nýtt námskeið hefst!

- Átak. Fit-Pilates - Nýtt námskeið hefst!


7. september:
- Átak. Lífsstíll - nýtt námskeið hefst !

- Átak. Bland í poka líkamsræktarnámskeið hefst.

- Átak. Spinning námskeið hefst.

- Átak. Karlapúl - Nýtt námskeið hefst !


8. september:
- Heyrnatækjaþjónusta í Stykkishólmi

- Út að ganga með Hebbunum


9. september:
- Augnlæknir til viðtals á heilsugæslustöðinni