Spennan magnast í Hólminum og eflaust víðar eftir því sem nær dregur viðureigninni við Keflavík í kvöld. Kraftur Snæfellsliðsins á körfuboltavellinum hefur oft verið hagmæltum andagift og jafnvel orðið til lagasmíða. Fyrir nokkrum dögum varð til stuðningslag fyrir Snæfell sem eflaust verður sungið í kvöld. Textinn og lagið kemur hér á eftir:
Lagið má heyra á You tube með því að smella hér.
Það er Snæfell sem að allt snýst um
Snæfell köllum við á pöllunum
Öll við óskum þess í góðri trú
Alla leikina við vinnum nú
Og hvetjum áfram bæði ég og þú
Stundin okkar er nú
Áður höfum við lifað það
að senda andstæðinginn fyrr í bað
Og nú ætlum við að gera það
Sama hvenær eða hvar
::Það er Snæfell sem að allt snýst um
á góðri leið að bikarnum
svo stöðugir á vellinum
Snæfell köllum við á pöllunum::
Það er Snæfell sem að allt snýst um
Snæfell köllum við á pöllunum
Að takmarkinu vinnum við
Vinna allt og gefum engum grið
Setjum þrista niður við og við
Því betra lið erum við
En við megum ekki slaka á
Það væri skandall sem að ekki má
Núna ætlum við að taka þá
og það verður ekkert smá