Stykkishólmspósturinn
23. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Forsíða > Fréttir > Ferðafélag Snæfellsness með Hönnu Jóns í broddi fylkingar
Þriðjudagur 14. júní 2011
Ferðafélag Snæfellsness með Hönnu Jóns í broddi fylkingar

Þann 16. Júní kl: 20:00 verður gengin Fjarðarhornsgata og Kirkjustígur í Berserkjahrauni á Snæfellsnesi. Mæting á eigin bílum við gömlu Mjósundabrúna og gengin verður Fjarðarhornsgatan upp með hraunjaðrinum. Gangan tekur milli tvo til þrjá klukkutíma og er þetta tilvalin leið fyrir fjölskyldufólk, enda falleg og auðveld.

Verð 600/800 kr.

Fararstjóri verður: Hanna Jónsdóttir Stykkishólmi.