N.k. laugardag heimsækja Stykkishólmskirkju sænsku tónlistarkonurnar Anna Larson og Sanna Andersson og verða með tónleika kl. 17 Þær stöllur munu segja sögur með söngrödd og sellói og hafa hlotið margskonar viðurkenningar fyrir framlag sig á Norðurlöndunum. Þær munu m.a. flytja verk eftir Gísla Jóhann Grétarsson sem var sérstaklega samið fyrir þær.
Meira...
Sunnudaginn 12. maí opnaði myndlistarsýning í veitingasal Landáms-seturs. Sýndar eru tré-skurðarmyndir eftir Ingibjörgu Ágústsdóttur frá Stykkishólmi. Flest verka Ingibjargar eru byggð á íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og ber þessi sýning yfirskriftina Sjö börn í sjó.
Hvert verk er einstakt en sumar sögurnar hefur Ingibjörg túlkað oftar en einu sinni í mismunandi myndum.
Meira...Héraðsnefnd hélt aðalfund sinn í FSN 16. apríl s.l. Örvar Marteinsson formaður lætur nú af störfum. Í skýrslu formanns kom fram að nokkur óvissa hefði ríkt um starf nefndarinnar þar sem á síðasta aðalfundi hófst umræða um framtíð nefndarinnar og fyrirkomulag byggðasafnsins.
Meira...
Báðir Lionsklúbbar Stykkishólms héldu lokafund sinn s.l. miðvikudag og við það tilefni afhenti Lionsklúbburinn sjúkrabílnum gjöf sem kemur í góðar þarfir. Það voru þeir Guðmundur Kristinsson gjaldkeri og Hermundur Pálsson formaður sem afhentu Einari Þór Strand sjúkraflutningamanni tækið.
Meira...
Tilkynning frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu s.l. þriðjudag eru rækjuveiðar í sunnanverðum Breiðafirði heimilaðar frá miðnætti 14.5.2013. Veiðarnar eru leyfðar vestan Krossanesvita fram til 1. júlí n.k.
Veiðarnar má ekki stunda með stærri skipum en 105 brl og skal varpa skipanna búin seiðaskilju eins og hún er skilgreind í reglugerðum frá ráðuneytinu.
Meira...
S.l. helgi komu hingað til Snæfellsness Norðmennirnir Eivind Brenna og Elisabeth Mellbye. Eivind og Elisabeth eru kennarar að mennt en hafa komið að stofnun og vinnu fyrsta svæðisgarðs Noregs, Valdres sem er myndað af sex bæjarfélögum í fjalllendi Noregs þar sem 18.000 íbúar búa. Þau funduðu með sveitarstjórnarfólki á Snæfellsnesi, skoðuðu svæðið og héldu opinn fund í Grundarfirði mánudaginn 6. maí. Þau komu hingað til lands á vegum svæðisgarðsverkefnis sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Eivind er stjórnarformaður Valdres svæðisgarðsins og samtaka norskra svæðisgarða. Norsku svæðisgarðarnir eru orðnir 5 talsins og amk 3 nýir í undirbúningi.
Meira...Á uppstigningadag verður boðið upp á málstofu á Hótel Hellissandi um verslun og útgerð við Breiðafjörð 1300-1600 kl. 19.30 Fyrr um daginn og daginn eftir verður boðið upp á vettvangsferðir með leiðsögufólki og skoðaðir staðir sem tengjast umræðuefni málstofunnar.
Meira...Kjörfundur fyrir alþingiskosningarnar opnaði kl.9 í morgun í Setrinu við tónlistarskólann. Á kjörskrá í Stykkishólmi eru 812 sem er tveimur færra en í síðustu kosningum 2009. Klukkan 14 höfðu 210 manns kosið sem gerir um 26% kjörsókn en það má geta þess til samanburðar að kjörsóknin 2009 var komin í rúm 34% kl.15.