Stykkishólmspósturinn
23. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 7. nóvember 2012
Karfan

Eftir gríðarlega góða rispu kom smá bakslag á gott gengi Snæfells í körfunni síðustu leikjum.  Það  var ekki hægt að vænta þess að liðin færu taplaus í gegnum tímabilið þó leikur liðanna hafi á köflum verið það góður að það gæti allt eins verið mögulegt héldu liðin þeim standard  í hverjum leik.

Meira...


Mánudagur 5. nóvember 2012
Fræðslufyrirlestur um garðyrkju í Stykkishólmi

Fyrirhugaður er fræðslufyrirlestur um garðrækt frá Garðyrkjufélagi Íslands á næstunni þar sem fræðslustjóri félagsins Kristinn H. Þorsteinsson mun fjalla um grunnræktun margskonar í erindi sem hann nefndir Rót vandans.

Meira...


Föstudagur 2. nóvember 2012
Nýtt sýningarrými í Stykkishólmi

Á Norðurljósahátíðinni nú í október var nýtt sýningarrými tekið í notkun á Aðalgötunni í húsakynnum leirverkstæðisins Leir 7.  Sýningin Ljósaljós sem Sigríður Erla Guðmundsdóttir leirlistakona og Ingríður Óðinsdóttir textílhönnuður sýndu verk sín stendur fram yfir næstu helgi en þar sýnir Sigríður lifandi ljósastjaka og Ingríður hangandi ljós úr ull.

Meira...


Fimmtudagur 1. nóvember 2012
Veðrið setur strik í reikninginn

www.vedur.is

Á vefsíðu veðurstofunnar www.vedur.is er stormviðvörun vegna útlits veðursins næstu daga.  Veðrið hefur áhrif á ýmsa viðburði m.a. ráðstefnu sem vera átti í Klifi Snæfellsbæ á morgun föstudag, henni hefur verið frestað vegna veðurs um óákveðinn tíma.  Einnig hefur afmælishátíð Háls- og bakdeildar St. Franciskusspítala verið frestað um óákveðinn tíma sem og opnum fundi á Hótel Stykkishólmi sem vera átti á morgun kl.13 undir yfirskriftinni Samstarf er lykill að árangri.

Meira...


Fimmtudagur 1. nóvember 2012
Kráarviskumót

Kráarviskumóti leikfélagsins Grímnis og veitingahússins Fimm fiska verður hleypt af stokkunum n.k. föstudag. 

Meira...


Fimmtudagur 1. nóvember 2012
FRESTAÐ Háls- og bakdeild St. Franciskusspítala 20. ára

Háls- og bakdeild St.Franciskusspítala á 20 ára afmæli um þessar mundir. Deildinni var komið á fót haustið 1992 af þeim Luciu de Korte og Jósep Blöndal og hefur starfað óslitið síðan.  Fyrsti hjúkrunardeildarstjóri var María Davíðsdóttir.

-- Afmælisfagnaði frestað um viku vegna veðurs --

Meira...


Fimmtudagur 1. nóvember 2012
Samstarf er lykill að árangri...

Í auglýsingu í Stykkishólms-Póstinum í dag er ranglega getið um fyrirlesara á þessum opna fundi á morgun á Hótel Stykkishólmi.  Meðal fyrirlesara eru Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir, skipulags- og byggingarfulltrúi Stykkishólms og Runólfur Þ. Sigurðsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Akraness.

Allir eru velkomnir

Meira...


Fimmtudagur 1. nóvember 2012
Bágborið ástand beitarlands í Stykkishólmi

Nýverið fundaði umhverfisnefnd Stykkishólmsbæjar og var m.a. lögð fram úttekt sem samþykkt var að gera í vor í samstarfi við Landgræðslu Ríkisins á ástandi hrossabeitarhólfa í Stykkishólmi.  Skoðunin fór fram 18. september s.l. og sýndi niðurstaðan fram á mjög bágborið ástand beitarlandsins.  4 af 6 beitarhólfum flokkuðust í slæmu eða mjög slæmu ástandi.

Meira...


Síða 15 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar&#58; Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei