Stykkishólmspósturinn
26. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 10. október 2012
Virkjun við Svelgsá

Fyrir mánuði síðan var niðurstaða Skipulagsstofnunar birt um fyrirhugaða virkjun í Svelgsá í Helgafellssveit.  

„Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að allt að 800 kW virkjun í Svelgsá í Helgafellssveit sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Meira...


Föstudagur 5. október 2012
Enn er málað í miðbæ Stykkishólms

Málarar hafa nóg að gera, varla búnir að mála húsin fyrir kvikmynd, þegar þeir hefjast handa við að mála aftur.  Bjössi málari er með sitt lið í nokkrum verkum og sjást breytingar nú þegar á Sjávarborg, Hafnavoginni og Ráðhúsinu.  Menn eru með skiptar skoðanir um nýja liti... En Hafnarvogin hefur fengið sama rauða lit og Egilshús en ekki er enn komin niðurstaða í lit á Ráðhúsið, en verið er að gera prufur.

Meira...


Föstudagur 5. október 2012

Vel var mætt á fyrsta haustfyrirlestur í fyrirlestrarröð Eldfjallasafnsins um Grænland s.l. laugardag.  Þar fjallaði  Haraldur Sigurðsson í máli og myndum um bráðnun Grænlandsjökuls, loftlags-breytingar og áhrif þeirra. 

Meira...


Föstudagur 5. október 2012
Göngum til góðs í Stykkishólmi

Sjálfboðaliðar óskast til þátttöku í landsöfnunina Göngum til góðs sem verður laugardaginn 6. október. Takmarkið er að ná að ganga á öll heimili í landinu en til þess vantar okkur þína hjálp.

Meira...


Fimmtudagur 4. október 2012
Kosningahnappur virkur á vefnum

Eins og minnst var á í síðast tölublaði Stykkishólms-Póstsins þá fer kosninavetur í hönd.  Þegar hefur blaðinu borist efni sem tengist Alþingiskosningum og hefur af því tilefni verið opnaður hlekkur á vef blaðsins, www.stykkisholmsposturinn.is sem ber heitið Kosningar og mun efni sem tengist prófkjörum vegna komandi Alþingiskosninga verða safnað saman þar. 

Meira...


Fimmtudagur 4. október 2012
Breyttur samningur um rekstur náttúrustofa

Um næstu áramót rennur út samningur umhverfisráðuneytisins við sveitarfélög á landinu um rekstur sjö náttúrustofa víðs vegar um landið.  Núverandi samningur er þannig að ríkið hefur lagt grunnframlag til rekstrarins og svo hafa stofurnar sótt til fjárlaganefndar Alþingis styrki vegna rannsókna og verkefna.  Sveitarfélögin hafa lagt fram 30% framlag á móti grunnframlaginu.  

Meira...


Miðvikudagur 3. október 2012
Meistarar meistaranna

Stelpurnar hafa farið vel af stað bæði í æfingaleikjum og ekki síst í baráttunni um fyrstu titla tímabilsins, Lengjubikarinn og Meistara Meistaranna, sem þær hirtu báða.  Fyrst tryggðu þær sér Lengjubikarinn með góðum sigri á Keflavík 78-72 s.l fimmtudag og svo Meistara Meistaranna með öruggum sigri 84-60 á Íslandsmeisturum Njarðvíkur s.l. sunnudag en það má geta þess að þessir úrslitaleikir fóru fram á heimavöllum Keflavíkur og Njarðvíkur.

Meira...


Miðvikudagur 3. október 2012
Göngustígar, gangstéttar, leikvellir í Stykkishólmi

S.l. mánudagskvöld kynnti vinnuhópur á vegum Stykkishólmsbæjar sem skipaður var Inga Ingasyni, Írisi H. Sigurbjörnsdóttur og Hrefnu Frímannsdóttur framtíðarskipulag gönguleiða, stíga og leikvalla í landi Stykkishólmsbæjar á vel sóttum fundi í Ráðhúsinu.  Þar fóru þau yfir vinnu sína sem er frábærlega vel unnin og kynntu forgangsröðun og hugmyndir sínar sem kviknuðu þegar vinnan fór fram.  Nefndin hafði gengið alla göngustíga í bæjarlandinu, mælt og skipt ástandi gangstétta niður í flokka eftir því hvar þyrfti fyrst að taka til hendinni, skipt leikvöllum upp í flokka eftir aldri barna og auk þess gert tillögur að mislöngum útivistarhringjum með æfingastöðvum víðsvegar á leiðinni.  Í umfjöllun um leikvellina kom berlega í ljós að þar er virkilega þörf á endurbótum og markvissri uppbyggingu.  Sama er að segja um ástand gangstétta víðsvegar um bæinn, þá er brýnt að farið verði fljótlega í skipulegar úrbætur.

Fundarmenn voru sammála um að þarna væri á ferð gott innlegg inn í vinnu bæjarins á sviði skipulags- og fjármála og helst þyrfti að hefjast handa sem fyrst, allt væri þetta spennandi.

Meira...


Síða 18 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


12. júní:
- Síðasti dagur til að innrita í Tónlistarskóla Stykkishólms


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei