Stykkishólmspósturinn
20. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Þriðjudagur 4. júní 2013
Nýir liðsmenn

Mynd: Eyþór Benediktsson

Það er nokkuð liðið frá því að tímabilinu lauk í körfunni en landsliðsfólkið sló þó ekki slöku við í maí þar sem bæði var Norðurlandamót yngri landsliða og svo Smáþjóðaleikarnir sem fóru fram í Luxemburg í síðustu viku.  Ingi Þór var þjálfari U18 liðs karla á NM og Snæfell átti þrjá leikmenn í landsliðum Íslands á Smáþjóðaleikunum. Hildur Björg Kjartansdóttir lék sínu fyrstu leiki með A-landsliðinu og var vel að því komin eftir frábært tímabil.  Hildur Björg var ekki sú eina frá Snæfelli, nafna hennar, Hildur Sigurðardóttir var að sjálfsögðu einnig með en hún er á góðri leið með að verða leikjahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi. Þá má geta þess að þriðji Hólmarinn, Gunnhildur Gunnarsdóttir leík einnig með landsliðinu á mótinu.  Þær stöllurnar stóðu sig vel allar vel með landsliðinu sem endaði í 2.sæti eftir naumt tap gegn Luxemburg í úrslitaleiknum.  Þriðji leikmaðurinn, Jón Ólafur Jónsson lék svo með karlalandsliðinu sem hafnaði í þriðja sætinu.  

Meira...


Fimmtudagur 23. maí 2013
25.889 kg af þorski í einni lögn

Áhöfnin á Bíldsey sem stödd er við Austfirði á veiðum þessa dagana hefur slegið enn eitt metið.  Í fyrradag gerðu þeir góðan túr þegar þeir lönduðu 25. 889 kg sem þeir fengu á 16.000 króka utarlega við Reyðarfjarðardjúp.  Aflinn var góður þorskur sem samsvarar um 808 kg á bala ef þeir væru í notkun í Bíldseynni.  Þetta er mesti afli sem þeir hafa fengið í einni lögn á línu.

Meira...


Fimmtudagur 23. maí 2013
Fullyrðingagleðin

Í hugmyndabankanum, sem hefur útibú í sundlauginni, koma hugmyndir sem oft rata hér á síður Stykkishólms-Póstsins. Í apríl kveður við nýjan tón í hugmyndum bæjarbúa.  Þar kvartar bæjarbúi sáran yfir því hversu neyðarlegt það sé að svara fyrir það að ekki hægt sé að fara út að borða í ferðamannabænum Stykkishólmi.  Veitingastaðir eigi að hafa opið á matmálstímum og vísi ekki fólki frá og sýni sveigjanleika þegar viðskiptavinir mæti á staðinn rétt fyrir lokun eldhúss og gefi þeim að borða.  

Meira...


Miðvikudagur 22. maí 2013
Upplestur og tónleikar í Vatnasafninu

Laugardaginn 25. maí 2013 mun Gyða Valtýsdóttir sellóleikari sem áður var í Múm, en hefur alfarið snúið sér að klassískri tónlist flytja sérstakan konsert sem hún í vann með Vatnasafnið í huga. Gyða Valtýsdóttir mun flytja tónlist sína ásamt Shahzad Ismaily sem er þekktur fjölvíddartónlistarmaður.

Meira...


Miðvikudagur 22. maí 2013
Fjarmenntaskólinn

Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám.  Um er að ræða Fjörbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu

Meira...


Miðvikudagur 22. maí 2013
Læknamál í Stykkishólmi

Breytingar á starfsmannahaldi sjúkrahússins eru í farvatninu.  Læknamönnun við heilsugæsluna verður með öðru sniði en áður þar sem gerður hefur verið samningur við nokkra lækna um að ábyrgjast mönnun einnar læknisstöðu í Stykkishólmi til og með 30. júní 2014.  Það þýðir, að sögn Þóris Bergmundssonar framkvæmdastjóra lækninga og rekstrar Heilbrigðisstofnun Vesturlands,

Meira...


Föstudagur 17. maí 2013
Sænskur dúett á heimsmælikvarða

N.k. laugardag heimsækja Stykkishólmskirkju sænsku tónlistarkonurnar Anna Larson og Sanna Andersson og verða með tónleika kl. 17  Þær stöllur munu segja sögur með söngrödd og sellói og hafa hlotið margskonar viðurkenningar fyrir framlag sig á Norðurlöndunum.  Þær munu m.a. flytja verk eftir Gísla Jóhann Grétarsson sem var sérstaklega samið fyrir þær.

Meira...


Föstudagur 17. maí 2013
Sjö börn í sjó í Borgarnesi

Sunnudaginn 12. maí  opnaði myndlistarsýning í veitingasal Landáms-seturs. Sýndar eru tré-skurðarmyndir eftir Ingibjörgu Ágústsdóttur frá Stykkishólmi. Flest  verka Ingibjargar eru byggð á íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og ber þessi sýning yfirskriftina Sjö börn í sjó. 

Hvert verk er einstakt en sumar sögurnar hefur Ingibjörg túlkað oftar en einu sinni í mismunandi myndum. 

Meira...


Síða 3 af 116: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116





21. júní:
- Sólstöðuganga á Hreggnasa í Þjóðgarðinum kl.21


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga

- Opnun í Leir 7 Hönnun í tré kl. 14


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


25. júní:
- 16.unglingalandsmót UMFÍ Kynningarfundur í íþróttahúsinu kl. 18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei