Stykkishólmspósturinn
19. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Mánudagur 3. september 2012
Góð ferð Snæfellinga á Suðurnesin

Um helgina var keppt í Ljósanæturmóti í kvennakörfunni og tóku Snæfellsstúlkur þátt í fjórða sinn.  Þær gerðu sér lítið fyrir unnu mótið og eru því Ljósanæturmótsmeistarar 2012.

Strákarnir tóku þátt í Reykjanescupmótinu sem haldið var í síðustu viku.  Þeir gerðu einnig góða ferð og unnu titilinn í þriðja skiptið á fjórum árum.

Til hamingju!

Meira...


Föstudagur 31. ágúst 2012
Breytingar hjá Átaki líkamsrækt

Átaks líkamsræktar í sumar hafa stofnað fyrirtækið Force ehf um reksturinn.  Gísli er á fullu í  námi og fer utan til Bandaríkjanna til að verja ritgerð sína í íþróttafræðum í október en að því loknu mun hann einbeita sér að fullu að fyrirtækinu ásamt Sigríði. 

Meira...


Föstudagur 31. ágúst 2012
Ilmandi brjóstsykur í Norska húsinu á síðasta opnunardegi sumarsins

Það lagði lokkandi sælgætisilm um Norska húsið í gær, þegar Anna Dröfn frá Kví-kví brjóstsykursgerð lagaði hverja brjóstsykurstegundina af annarri í anddyri Norska hússins í gær.  Í Krambúðinni mátti finna sitthvað áhugavert til sölu og margt af því á sérlegu tilboðsverði.  

Meira...


Fimmtudagur 30. ágúst 2012
Sterna hættir akstri 15. september

Eins og fram hefur komið hér á vef blaðsins, munu verða breytingar á almenningssamgöngum á Snæfellsnes frá og með 2. september n.k. þegar Strætó bs og Hópbílar ehf taka við akstrinum.  Sterna sem hefur séð um aksturinn Reykjavík-Snæfellsnes undanfarin ár hættir akstri 15. september n.k. á þessari leið.

Meira...


Fimmtudagur 30. ágúst 2012
Dimmir yfir Ráðhúsinu

Það er klárlega dagamunur á Ráðhúsinu í Stykkishólmi úr ljósbleiku var það komið í dökkar dulur í gær og í morgun orðið svart í framan!

Meira...


Miðvikudagur 29. ágúst 2012
Markaðsdagur og síðasti dagur sumars

Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla stendur fyrir markaðsdegi í dag, fimmtudaginn 30. ágúst, á síðasta degi sumaropnunar safnsins.  Á markaðsdeginum verða notaðir og nýjir hlutir til sölu í Krambúðinni, á góðu verði.  Anna Dröfn hjá Kví kví brjóstsykursgerð sýnir milli kl. 13 - 17 hvernig hún fer að í brjóstsykursgerðinni og gefur einnig smakk.

Meira...


Miðvikudagur 29. ágúst 2012
Þúfurnar á Snæfellsjökli

Mynd: Haraldur Sigurðsson

Eins og áður hefur komið fram í Stykkishólms-Póstinum þá heldur Haraldur Sigurðsson úti fróðlegu bloggi sem nálgast má frá vefsíðu Eldfjallasafnsins www.eldfjallasafn.is Í gær skrifar Haraldur um Þúfurnar á Snæfellsjökli, sem eru hæstu tindar jökulsins. „Sú í miðju er hæst, eða 1446 metrar. Þegar ég hef klifið Jökulinn þá hefur Þúfan nær undantekningalaust verið hulin ís og fönn.

Meira...


Þriðjudagur 28. ágúst 2012
Eivør Pálsdóttir með tónleika í Stykkishólmi

21. ágúst s.l. gaf Eivør út nýja plötu ROOM hér á Íslandi og í Færeyjum.  Platan kemur út 17. september í Danmörku.  Af því tilefni mun hún halda þónokkra tónleika hér á landi til að kynna efni nýju plötunnar.  Hún verður með tónleika ásamt hljómsveit sinni hér í Stykkishólmi 29.ágúst á Hótel Stykkishólmi.

Meira...


Síða 21 af 113: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113





19. maí:
- Opið í Nesbrauð 9-16

- Fermingarmessa í Stykkishólmskirkju kl. 14


20. maí:
- Annar í Hvítasunnu

- Opið í Nesbrauð 9-16

- Fermingarmessa í Helgafellskirkju kl. 14

- Heitt á könnunni hjá Huldu í Safnaðarheimilinu kl. 15-17


21. maí:
- Útisundlaug lokuð v. viðgerða


24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei