Stykkishólmspósturinn
26. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 15. ágúst 2012
Leiskólinn kominn af stað aftur eftir sumarfrí

Starfið í leikskólanum er að komast á fullt skrið þessa dagana og inn streyma nemendur og starfsmenn, endurnærð eftir sumarleyfi. 

Meira...


Miðvikudagur 15. ágúst 2012
Metfjöldi báta og landanir í sumar í Stykkishólmshöfn.

Í sumar hefur verið metfjöldi smábáta við Stykkishólmshöfn.  Sumir eru fiskibátar meðan aðrir eru meira í ætt við skemmtibáta.  Bátar sem veiða í strandveiðikerfinu eru margir en veiðum á svæðinu innan þess kerfis lauk í síðustu viku.  Svæði A innan þess nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. Í hlut þess koma 715 tonn í maí, 858 tonn í júní, 858 tonn í júlí og 429 tonn í ágúst, sem nú hefur verið náð.  Mikið er af makríl hér í firðinum og eru einhverjir bátar eru komnir á makrílveiðar og er frysting á makríl hafin hér a.m.k. hjá útgerðinni Þórishólma. 

Meira...


Miðvikudagur 15. ágúst 2012
Hólmarinn Þór Breiðfjörð og dívan Valgerður Guðnadóttir á tónleikum í kvöld!

Þór Breiðfjörð söngvari sem hlaut Grímuverðlaun í sumar fyrir söng sinn í Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu og Valgerður Guðnadóttir söngkona sem einnig söng í Vesalingunum, verða með hressa og skemmtilega tónleika í sumartónleikaröð Stykkishólmskirkju fyrir alla fjölskylduna í kvöld, 16. ágúst kl. 20.30

Meira...


Miðvikudagur 15. ágúst 2012
Undirbúningur hafinn fyrir kvikmyndatökur

Eins og flestir vita þá er áformað að kvikmynda hér í Stykkishólmi hluta úr mynd bandaríska leikarans og leikstjórans Ben Stiller The Secret life of Walter Mitty.  Undirbúningur fyrir tökudagana sem verða seinnipartinn í september er þegar hafinn og hefur leikstjórinn látið sjá sig auk starfsmanna kvikmyndarinnar hér í Hólminum í sumar. 

Meira...


Þriðjudagur 14. ágúst 2012
Ljótt að sjá!

Það var leiðinleg aðkoman í grænmetisgarði leikskólans í morgun þegar nemendur og starfsfólk mættu til vinnu.  Búið var að rífa upp og skemma ræktun barnanna í leikskólanum í læstum garði.  

Meira...


Þriðjudagur 14. ágúst 2012
Lopa-Graffiti við höfnina

Verslunin Sjávarborg bryddar upp á áhugaverðri nýung á Dönskum dögum í ár.  Það er svokallað Lopa-Graffiti undir yfirskriftinni:  Skreytum Plássið 

Má bæði prjóna og hekla úr lopa í þessu verkefni.

Meira...


Föstudagur 10. ágúst 2012
Stykkishólmur og Hólmarar

Facebook eða Fésbók eins og sumir kalla fyrirbærið er til margra hluta nytsamlegt, þótt á stundum geti það verið mikill tímaþjófur.  En í samfélagsvettvangi á netinu eins og Facebook hópar sig saman fólk með t.d. svipuð áhugamál.

Meira...


Fimmtudagur 9. ágúst 2012
Framkvæmdir í Flatey

Það er kraftur í Flateyingum þessa dagana.  Búið er að gefa út símaskrá Flateyjar, 10 árið í röð, þar sem mikið af forvitnilegum fróðleik er að finna.  Búið er einnig að framleiða fallega muni til styrktar Flateyjarkirkju, með myndum eftir Baltasar Samper og nú stendur yfir mikil vinna við frystihúsið í Flatey, en síðustu helgi var öll aspest klæðning í þaki fjarlægð.

Meira...


Síða 24 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


12. júní:
- Síðasti dagur til að innrita í Tónlistarskóla Stykkishólms


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei