Fiskistofa í samstarfi við Landhelgisgæsluna hefur haft eftirlit með fjölda grásleppuneta í sjó hjá bátum sem stunda grásleppuveiðar.
Á dögunum var farið um borð í grásleppubáta úti fyrir Norðurlandi eftir að skoðun á gögnum og veiðarfærum á veiðislóð gáfu vísbendingar um að netafjöldi væri umfram leyfilegan fjölda.
Meira...Í mjög svo óformlegri könnun sem gerð var hér á Stykkishólms-Póstinum síðustu tvær vikur fyrir páska var spurt hvað viðkomandi gerði í páskafríinu?
Yfirgnæfandi meirihluti sagðist vera heima, eða 67,95% þeirra sem svöruðu könnun.
Hinsvegar var mjög gestkvæmt hér í Hólminum um páskana og umferð gangandi fólks áberandi þessa daga, jafnt á nóttu sem degi.
Meira...Meistarinn, pylsuvagninn sem stendur við Freyjulund á sumrin, hefur verið í húsi í vetur en er nú kominn á sinn stað. Segir í tilkynningu frá Meistaranum að nú verði sumrinu þjófstartað! Opnað verður miðvikudaginn 4. apríl kl. 17 og opið til kl. 20 og svo alla daga yfir hátíðarnar.
Meira...
Ýmsar tegundir fiska og fugla eru mikilvægasta fæða íslenska minksins samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Rannveigar Magnúsdóttur og félaga á Náttúrustofu Vesturlands, Háskóla Íslands og Oxfordháskóla. Skoðað var hvernig fæðan var mismunandi eftir búsvæðum, árstíðum og kyni með því að greina innihald í maga 851 minks sem veiðimenn víða af landinu útveguðu til rannsókna.
Meira...
Lárus Ástmar Hannesson forseti bæjarstjórnar og Vinstri Grænn, hefur óvænt boðið til opins fundar á Narfeyrarstofu kl. 16 í dag. Hann hefur ekki gefið upp fundarefnið og samstarfsfólk hans innan bæjarstjórnar er einnig þögult sem gröfin um fundarefnið.
Meira...
Í hálfleik í leik Snæfells og Njarðvíkur í undanúrslitum í IE deild kvenna í körfubolta voru Íþróttamenn HSH útnefndir. Íþróttamaður HSH í ár var valinn Jón Ólafur Jónsson körfuknattleiksmaður úr Snæfelli
Meira...Snæfell tapaði fyrir Njarðvík 85-93 í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Þar með er staðan orðin 1-2 fyrir Njarðvík í rimmu liðanna en þrjá sigra þarf til að komast áfram. Leikurinn í kvöld var líkt og fyrstu tveir jafn og spennandi. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem Snæfell var þó meira í að elta þá náði Snæfell yfirhöndinni í þriðja leikhluta og var leiðandi þar til komið var í fjórða leikhlutann.
Meira...
Páskablaðið er á fullu í vinnslu og hellingur af skemmtilegu efni komið í hús! Blaðinu verður dreift með Íslandspósti á fimmtudag í öll hús og fyrirtæki!
Skilafrestur efnis og auglýsinga framlengdur til kl. 14 í dag, þriðjudag