Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Þriðjudagur 27. mars 2012
Ráðstefna um möguleika í atvinnumálum á Snæfellsnesi

Föstudaginn 30. mars nk. efna Samtök atvinnulífsins og Þróunarfélag Snæfellinga í samstarfi við Atvinnuráðgjöf Vesturlands til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi um möguleika í atvinnumálum á Snæfellsnesi. Á ráðstefnunni sem hefst kl. 13.00 verður m.a. fjallað um sjávarklasann og vaxtarmöguleika í sjávarútvegi á Snæfellsnesi, nýsköpun í vinnslu sjávarfangs og samstarf vinnslustöðva og rannsóknarstofnana, orkunýtingu til atvinnuuppbyggingar, ferðaþjónustu og afþreyingu allt árið. 

Meira...


Sunnudagur 25. mars 2012
Ísinn brotinn

Snæfell hleypti heldur betur spennu í úrslitakeppnina í IE-deild kvenna með því að vinna 85-83, nauman en sanngjarnan sigur á Njarðvík í kvöld.  Leikurinn var jafn lengst af en Snæfell náði undirtökunum hægt og bítandi og var sterkari aðilinn í lokin þegar mest þurfti. Með sigrinum jafnaði Snæfell stöðuna í rimmu liðanna í 1-1 en þrjá sigra þarf til að komast áfram í leikina um titilinn.

Meira...


Föstudagur 23. mars 2012
ÚT og vestur

Go West tours - Út og vestur er vistvæn ferðaþjónusta sem skipuleggur útivistarferðir einkum á Breiðafjarðarsvæðinu og hefur getið sér gott orð fyrir ferðir sínar.  Í apríl og maí býður fyrirtækið upp á ferðir á Snæfellsjökul, frá Reykjavík en einnig sérferðir eftir óskum hvers og eins.  Á vefsíðu Go West vekur athygli að hluti greiðslu fyrir ferðina á jökulinn er framlag til björgunarsveita á svæðinu

Meira...


Fimmtudagur 22. mars 2012
Umhverfismál eða ímyndarfegrun

Þegar ég var að alast upp sem peyi í Vestmannaeyjum, skömmu eftir miðja síðustu öld, voru sorpmálin þar í ólestri eins og víðast hvar á landinu.  Sjá nánar í aðsent efni.



Fimmtudagur 22. mars 2012
Norðurljósahátíð 2012

Norðurljósahátíðin verður haldin í október á þessu ári og búið er að skipa undirbúningsnefnd fyrir hátíðina.

Meira...


Fimmtudagur 22. mars 2012
Sleðamenn í Kerlingarskarði

Nýliðna helgi mættu um 30 snjósleða-kappar hingað vestur úr PolarisKlúbbnum til að þeysa á fákum sínum í frábæru færi um helgina.  Hópurinn gisti á Skildi og fór svo upp í fjall strax á föstudagskvöldið undir leiðsögn Kristjáns Auðarssonar í Vélsleðasafninu.

Meira...


Miðvikudagur 21. mars 2012
Trommusveitin kom sá og sigraði á Nótunni í Hörpu s.l. helgi

Lokahátíð Nótunnar 2012 – uppskeruhátíðar tónlistarskólanna – fór fram á sunnudaginn var í Eldborgarsal Hörpu. Tónlistarskóli Stykkishólms átti eitt af þeim þremur atriðum sem voru fulltrúar Vesturlands á hátíðinni, en það var trommusveit skólans. Trommusveitin er skipuð þeim Birki Frey Júlíussyni, Eyþóri Óskarssyni, Haraldi Björgvin Helgasyni, Hinrik Þór  Þórissyni og Jóni Grétari Benjamínssyni.

Meira...


Miðvikudagur 21. mars 2012
Ísland allt árið - Sæferðir hljóta styrk

Í vetur auglýstu Iðnarráðuneytið, Ferðamálastofa, Nýsköpunar-miðstöð Íslands og Landsbankinn eftir umsóknum um styrk til þróunar markaðssetningar afþeyingarmöguleika utan háannatíma ferðaþjónustunnar.

Meira...


Síða 36 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei