
Það er hlýtt og notalegt í innilauginni í íþróttamiðstöðinni. Á mánudögum kl. 15 hópast krakkar af yngsta stigi og miðstigi grunnskólans í sund á æfingu hjá Sunddeild Snæfells. María A. Valdimarsdóttir þjálfar hópinn og segir hópinn á milli ára vera u.þ.b. 15-20 krakkar.
Meira...
Önnur umferð þriðju- og fjórðu deildar íslandsmótsins í blaki fór fram í Ásgarði í Garðabæ um helgina. Snæfell vann fjóra af fimm leikjum sínum og er því í efri hluta deildarinnar þegar síðasta umferð verður spiluð í mars og á því möguleika á að vinna sig upp um deild.
Meira...
Nýjasta flotbryggjan sem kom í haust í Stykkishólmshöfn varð fyrir skemmdum í óveðri í janúar. Hún sannaði sig samt sem áður sem öldubrjótur í þessu sama veðri.
Meira...
Laugardaginn 25. febrúar halda tónlistarskólar landsins upp á Dag tónlistarskólanna. Tónlistarskóli Stykkishólms heldur upp á daginn með því að bjóða til glæsilegrar tónlistarveislu í Stykkishólmskirkju kl. 14:00.
Meira...
Stykkishólms-Pósturinn í samstarfi við foreldrafélag grunnskólans bauð upp á myndatöku í íþróttahúsinu á öskudag.

Á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 16. febrúar s.l. var lögð fram umsókn Skipavíkur um að byggja og reka gisti- og ferðaþjónustu á svæðinu við Sundvík. Skv. deiliskipulagi Stykkishólmsbæjar er lóðin merkt undir þjónustu, en ekki tilgreint frekar hverskonar þjónustu. Í fundargerð frá bæjarráðsfundinum er bókað að bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar muni setja sig í samband við Skipavík til að ræða málin.
Meira...Eins og lesendur Stykkishólms-Póstsins hafa eflaust rekið augun í þá var fyrirsögn á blaðinu í dag: Úttekt á leikskólanum í Stykkishólmi... já alveg rétt - hún var þarna líka síðustu viku! Fyrirsögnin átti að vera: Svæðið við Sundvík
Þetta var ss frétt sem var í grímubúningi...:D
Í gær fréttist af aflaklóm á Landey SH-31 sem fiskuðu 16 tonn í einum róðri! Mun áhöfnin hafa drifið sig strax aftur út á miðin til að halda áfram veiðum eftir að hafa landað þessum mikla afla.
Það er Þórsnes ehf sem gerir Landey út, sem er 14.83 brúttonn.
Meira...