Stykkishólmspósturinn
23. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Fimmtudagur 23. febrúar 2012
Öskudagspúki á ritstjórn

Eins og lesendur Stykkishólms-Póstsins hafa eflaust rekið augun í þá var fyrirsögn á blaðinu í dag:   Úttekt á leikskólanum í Stykkishólmi... já alveg rétt - hún var þarna líka síðustu viku! Fyrirsögnin átti að vera:  Svæðið við Sundvík

Þetta var ss frétt sem var í grímubúningi...:D



Miðvikudagur 22. febrúar 2012
Mikil veiði...

Í gær fréttist af aflaklóm á Landey SH-31 sem fiskuðu 16 tonn í einum róðri!  Mun áhöfnin hafa drifið sig strax aftur út á miðin til að halda áfram veiðum eftir að hafa landað þessum mikla afla.

Það er Þórsnes ehf sem gerir Landey út, sem er 14.83 brúttonn.

Meira...


Þriðjudagur 21. febrúar 2012
Erla Björk í Vör skipuð rektor að Hólum

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni tilnefningu háskólaráðs Hólaskóla- Háskólans á Hólum skipað Erlu Björk Örnólfsdóttur í embætti rektors Hólaskóla- Háskólans á Hólum til fimm ára frá 1. apríl nk. að telja. Þetta kemur fram á vef Menntamálaráðuneytisins.

 

Meira...


Fimmtudagur 16. febrúar 2012
Umferð um þjóðgarðinn eykst

Í fundargerðum ráðgjafa-nefndar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls frá síðasta ári, sem bárust Stykkishólms-Póstinum í vikunni, kemur fram að starfið í Þjóðgarðinum hafi gengið vel s.l. sumar.  Alls komu 10 landverðir að vinnunni auk þjóðgarðsvarðar. Þrír landverðir voru ráðnir til viðbótar vegna Vatnshellis, samtals í um 37 vikur.  Landvarðavikur voru um 90 á árinu 2011 miðað við 50 árin á undan.  Fyrstu níu mánuði ársins höfðu 20 þúsund ferðir verið skráðar um veginn út á Öndverðarnes.

Meira...


Miðvikudagur 15. febrúar 2012
Stemningin fyrir Bikarleiknum á laugardaginn hjá stelpunum góð

Undirbúningur vegna leiksins hjá stelpunum á laugardaginn er kominn á fullt skrið.  Þannig barst sú frétt á Stykkishólms-Póstinn að starfsmannafélagið á Sýsluskrifstofunni Ljómi hafi ákveðið að styrkja stelpurnar um 50.000 í tilefni af glæsilegum árangri þeirra.  Starfsmannafélagið skorar jafnframt á fleiri félög til að slíkt hið sama.

Meira...


Miðvikudagur 15. febrúar 2012
112 dagurinn var s.l. laugardag

Frá 112 deginum í Stykkishólmi s.l. laugardag.  Opið hús var í Björgunarsveitarhúsinu og var bíll klipptur, menn fengu að prófa hinn fræga gasúða lögreglunnar og var ljóst af viðbrögðum sjálfboðaliða að það var allt annað en þægilegt eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Meira...


Miðvikudagur 15. febrúar 2012
Úttekt á leikskólanum í Stykkishólmi

Í haust var gerð á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins úttekt á starfsemi Leikskólans í Stykkishólmi. Markmiðið var að leggja mat á starfsemi leikskólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Í skýrslunni kemur m.a. fram að börnum á leikskólanum sé búið hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og örugg náms- og leikskilyrði.  Einnig kemur fram að „skólinn virðist nokkurs konar óskabarn Stykkishólms og nýtur virðingar og vinsemdar hagsmunaaðila, grenndarsamfélags og atvinnulífs, ... Þjónusta leikskólans við foreldra virðist vera til fyrirmyndar og sátt ríkir milli leikskólans og foreldra um fyrirkomulag starfsins.“

Meira...


Þriðjudagur 14. febrúar 2012
Kvennalið Snæfells í fyrsta sinn í úrslitaleik bikarsins.

Mynd:Þorsteinn Eyþórsson

Stjarnan mætti í Hólminn í undanúrslitaleik Poweradebikar kvenna þar sem Snæfellssttúlkur tóku á móti þeim. Hvorugt lið hefur komist svo langt áður og ljóst að leikurinn myndi skila nýjum nöfnum í úrslitaleik bikarsins. Stjarnan er í öðru sæti fyrstu deildar og Snæfell í fimmta sæti Iceland Express deildarinnar.  Í fyrstu  leikhlutum var ekki mikinn mun að sjá á liðunum eða þar til Snæfell tók stjórnina og í hálfleik var staðan 45-29 fyrir Snæfelli.  Í þriðja leikhluta  fór  Hildur Sigurðardóttir í fararbroddi Snæfellsstúlkna og var staðan eftir hann 79-39.  Undir lok fjórða leikhluta var brúnin farin að lyftast á Snæfellsstúlkunum þegar ljóst var orðið að sigur væri í höfn og þær á leið suður í bikarleik n.k. laugardag í Laugardalshöllinni kl. 13.30

Meira...


Síða 39 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar&#58; Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei