Í síðustu viku var neyðarteymi NSV kallað út tvisvar sinnum. Í fyrra skiptið var um grútarblautan fálka að ræða og rataði í fréttamiðla í síðustu viku. Þetta var hann Gústi sem nú er staddur í Húsdýragarðinum í RVK til aðhlynningar. Í seinna útkallinu var um grútarblautan örn að ræða, líka í Grundarfirði. Í ljós kom að þetta var enginn annar en Sigurörn sem sumir muna eftir frá 2006 þegar hann var í svipaðri stöðu.
Meira...
Snæfell varð bikarmeistari í unglingaflokki kvenna í dag í annað sinn á tveimur árum. Snæfell mætti liði Vals í úrslitaleiknum sem fór fram á heimavelli Vals. Snæfell var með yfirhöndina nánast allan leikinn en Valsstelpurnar gáfust þó ekki upp og náðu að jafna leikinn 54-54 um miðjan lokaleikhlutann. En þá sögðu Snæfellsstelpurnar stopp, náðu yfirhöndinni á ný og sigu framúr og sigruðu að lokum með þriggja stiga mun 61-58.
Meira...
Það er hlýtt og notalegt í innilauginni í íþróttamiðstöðinni. Á mánudögum kl. 15 hópast krakkar af yngsta stigi og miðstigi grunnskólans í sund á æfingu hjá Sunddeild Snæfells. María A. Valdimarsdóttir þjálfar hópinn og segir hópinn á milli ára vera u.þ.b. 15-20 krakkar.
Meira...
Önnur umferð þriðju- og fjórðu deildar íslandsmótsins í blaki fór fram í Ásgarði í Garðabæ um helgina. Snæfell vann fjóra af fimm leikjum sínum og er því í efri hluta deildarinnar þegar síðasta umferð verður spiluð í mars og á því möguleika á að vinna sig upp um deild.
Meira...
Nýjasta flotbryggjan sem kom í haust í Stykkishólmshöfn varð fyrir skemmdum í óveðri í janúar. Hún sannaði sig samt sem áður sem öldubrjótur í þessu sama veðri.
Meira...
Laugardaginn 25. febrúar halda tónlistarskólar landsins upp á Dag tónlistarskólanna. Tónlistarskóli Stykkishólms heldur upp á daginn með því að bjóða til glæsilegrar tónlistarveislu í Stykkishólmskirkju kl. 14:00.
Meira...
Stykkishólms-Pósturinn í samstarfi við foreldrafélag grunnskólans bauð upp á myndatöku í íþróttahúsinu á öskudag.

Á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 16. febrúar s.l. var lögð fram umsókn Skipavíkur um að byggja og reka gisti- og ferðaþjónustu á svæðinu við Sundvík. Skv. deiliskipulagi Stykkishólmsbæjar er lóðin merkt undir þjónustu, en ekki tilgreint frekar hverskonar þjónustu. Í fundargerð frá bæjarráðsfundinum er bókað að bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar muni setja sig í samband við Skipavík til að ræða málin.
Meira...