Miðvikudagur 25. janúar 2012
Þorra fagnað á leikskólanum
Það var kátt á hjalla á Bóndadaginn s.l. föstudag í Leikskóla Stykkishólms. Krakkarnir höfðu gert sér Þorrahatta sem þau skrýddust í tilefni komu Þorrans og svo var borinn fram Þorramatur í hádeginu.
Meira...
Miðvikudagur 25. janúar 2012
Orgel vígt í Stykkishólmskirkju
Mynd: Þorsteinn EyþórssonÞað var bæði margt um manninn og hátíðleiki í loftinu s.l. sunnudag þegar langþráð stund velunnara Stykkishólmskirkju rann upp og nýja pípuorgelið sem sérsmíðað var fyrir kirkjuna var vígt. Góðir gestir komu víða að en vígslubiskupinn á Hólum Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, faðir Sigrúnar heitinnar, Biskup Íslands Hr. Karl Sigurbjörnsson, Philipp Klais og Stefan Hilgendorf frá Klais, Hörður Áskelsson Kantor Hallgrímskirkju, Tómas Guðni Eggertsson fyrrv.organisti Stykkishólmskirkju voru allir viðstaddir og tóku þátt í deginum á einn eða annan hátt.
Meira...
Þriðjudagur 24. janúar 2012
Unga fólkið á Vesturlandi
Mannfjöldi í Stykkishólmi við áramót var skv. tölum Hagstofunnar 1110 og það örlítil fjölgun frá áramótunum þar á undan. Í nýlegum Hagvísi Vesturlands sem SSV gaf út fyrir skömmu hefur Vífill Karlsson tekið saman gögn um íbúaþróun á Vesturlandi sérstaklega í yngri aldurshópunum. Niðurstaðan er sú „að ungum íbúum fækkaði hlutfallslega minnst á Vesturlandi í samanburði við aðra landshluta ef frá eru talin höfuðborgarsvæðið og Suðurnes.
Meira...
Þriðjudagur 24. janúar 2012
Rafmagnstruflanir í morgun..
Rafmagn fór af Borgarfirði og Snæfellsnesi þegar spennir leysti út í aðveitustöð við Vatnshamra kl. 7:05. Rafmagn komst fljótlega aftur allt svæðið.
Um kl. 07:50 leysti Reykholtsdalslína út og var rafmagni fljótlega komið að Deildartungu, vinnuflokkur í Borgarnesi hefur verið kallaðu út til viðgerðar.
Meira...
Þriðjudagur 24. janúar 2012
Nýi slökkviliðsbíllinn kominn
Nýja slökkvibifreiðin er komin til Brunavarna Stykkishólms og nágrennis frá Hollandi. Eins og glöggir bæjarbúar urðu varir við um helgina mátti bæði heyra og sjá til bílsins þar sem slökkviliðsmenn tóku hring um bæinn í fylgd eldri bílanna af tilefni komu þess nýja.
Meira...
Mánudagur 23. janúar 2012
Snæfell úr leik í bikarnum
Eftir frækilega baráttu og tvíframlengdan leik gegn KR, urðu Snæfellspiltar að játa sig sigraða í kvöld 111-104 í átta liða úrslitum Powerade bikarsins. Nýju erlendu leikmennirnir þrír hjá KR reyndust Snæfellingum erfiðir, sérstaklega þó Johsua Brown sem skoraði 49 stig en alls voru þeir með 81 stig af 111 stigum KR. Hjá Snæfelli skoruðu Quincy Hankins-Cole 23/10, Jón Ólafur 22/10, Hall 16, Ólafur 13, Hafþór 13, Pálmi 9/8, Sveinn 8.
Mánudagur 23. janúar 2012
Námskeið í Vélgæslu í Snæfellsbæ
Stefnt er að vélgæslunámskeiði í Snæfellsbæ á næstunni sem hefur réttindi á 750 kW(1000 hö) vélar á bátum allt að 12 metrar á lengd. Hinsvegar þarf lágmark 10 þátttakendur til að námskeiðið verði haldið.
Meira...
Sunnudagur 22. janúar 2012
Fiskisúpan á Narfeyrarstofu alltaf góð
Kvennalið Snæfells hefur bætt við sig erlendum leikmanni, Jordan Murphree, sem kemur frá Bandaríkjunum. Það sannast með komu hennar að góð fiskisúpa getur heillað meira en hitinn og sólin í suðri. Sjá nánar á vef
Snæfells
Síða 41 af 113:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 - 41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113