
14. janúar s.l. var haldin fimleikasýning í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Fimleikadeildin er sú yngsta innan vébanda UMF. Snæfells en næstyngsta er Þríþrautadeildin. Myndir frá fimleikasýningunni tók María Magnúsdóttir.
Meira...
Snæfell hélt áfram sigurgöngu sinni í deildinni í kvöld þegar liðið sigraði KR 93-94 í Reykjavík og náði þar með að hefna fyrir grátlegt tap gegn KR í bikarnum s.l. mánudag. Sigurinn var sterkur liðsigur hjá Snæfelli sem sló hvergi af þó liðið hafi misst Jón Ólaf útaf með 5 villur þegar fjórar mínútur voru eftir. Það voru Pálmi og Ólafur sem tryggðu sigurinn með því að því að skora úr þremur af fjórum vítaskotum á síðustu 13 sekúndunum. Með sigrinum komst Snæfell upp fyrir ÍR og í 6. sætið. Snæfell getur komist upp í 5.sætið með sigri í næsta leik sem er gegn Þór Þorlákshöfn hér heima.

Í dag voru Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 veitt á Bessastöðum. Í flokki fagurbókmennta hlaut Guðrún Eva Mínervudóttir verðlaunin fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur og í flokki fræðirita hlaut Páll Björnsson verðlaunin fyrir bókina Jón forseti allur?
Sem kunnugt er starfaði Guðrún Eva hér í Stykkishólmi á fyrstu misserum hin nýopnaða Vatnasafns og var fyrsti rithöfundurinn í rithöfundaíbúð safnsins, á starfslaunum frá Vatnasafninu.

Það var kátt á hjalla á Bóndadaginn s.l. föstudag í Leikskóla Stykkishólms. Krakkarnir höfðu gert sér Þorrahatta sem þau skrýddust í tilefni komu Þorrans og svo var borinn fram Þorramatur í hádeginu.
Meira...
Það var bæði margt um manninn og hátíðleiki í loftinu s.l. sunnudag þegar langþráð stund velunnara Stykkishólmskirkju rann upp og nýja pípuorgelið sem sérsmíðað var fyrir kirkjuna var vígt. Góðir gestir komu víða að en vígslubiskupinn á Hólum Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, faðir Sigrúnar heitinnar, Biskup Íslands Hr. Karl Sigurbjörnsson, Philipp Klais og Stefan Hilgendorf frá Klais, Hörður Áskelsson Kantor Hallgrímskirkju, Tómas Guðni Eggertsson fyrrv.organisti Stykkishólmskirkju voru allir viðstaddir og tóku þátt í deginum á einn eða annan hátt.
Meira...Mannfjöldi í Stykkishólmi við áramót var skv. tölum Hagstofunnar 1110 og það örlítil fjölgun frá áramótunum þar á undan. Í nýlegum Hagvísi Vesturlands sem SSV gaf út fyrir skömmu hefur Vífill Karlsson tekið saman gögn um íbúaþróun á Vesturlandi sérstaklega í yngri aldurshópunum. Niðurstaðan er sú „að ungum íbúum fækkaði hlutfallslega minnst á Vesturlandi í samanburði við aðra landshluta ef frá eru talin höfuðborgarsvæðið og Suðurnes.
Meira...Rafmagn fór af Borgarfirði og Snæfellsnesi þegar spennir leysti út í aðveitustöð við Vatnshamra kl. 7:05. Rafmagn komst fljótlega aftur allt svæðið.
Um kl. 07:50 leysti Reykholtsdalslína út og var rafmagni fljótlega komið að Deildartungu, vinnuflokkur í Borgarnesi hefur verið kallaðu út til viðgerðar.

Nýja slökkvibifreiðin er komin til Brunavarna Stykkishólms og nágrennis frá Hollandi. Eins og glöggir bæjarbúar urðu varir við um helgina mátti bæði heyra og sjá til bílsins þar sem slökkviliðsmenn tóku hring um bæinn í fylgd eldri bílanna af tilefni komu þess nýja.
Meira...