Fimmtudagur 10. nóvember 2011
Mugison í Stykkishólmi
Sunnudaginn 13. nóvember n.k. kl. 21 heldur Mugison tónleika á Hótel Stykkishólmi. Mugison kemur fram með hljómsveit sem þeir: Guðni Finnsson - bassi, Arnar Gíslason - trommur, Þorbjörn Tobbi Sigurðsson - hljómborð/gítar auk hans sjálfs skipa.
Meira...
Fimmtudagur 10. nóvember 2011
Sýsló í Slóveníu
Sýsló skellti sér til Slóveníu um miðjan október og vildi svo skemmtilega til að þá helgi var einmitt Ljubljana marathonið haldið.
Meira...
Miðvikudagur 9. nóvember 2011
Aðalsafnaðarfundur Stykkishólmssafnaðar
Aðalsafnaðarfundur var haldinn s.l. mánudagskvöld hjá Stykkishólmssöfnuði. Kom fram í máli sóknarnefndarformanns, Unnar Valdimarsdóttur, að starf og orka sóknarnefndar hefði mikið til farið í orgelmál og viðhaldsvinnu vegna kirkjunnar en einnig í viðhaldsvinnu á kirkjugarði árið 2010.
Meira...
Miðvikudagur 9. nóvember 2011
Króm á Reitarveginum
Fyrr á þessu ári var stofnað nýtt fyrirtæki utan um bílaverkstæðið á Reitarvegi sem heitir KM réttingar og sprautun ehf Forkólfarnir Keli og Mummi eða Áskell Áskelsson og Guðmundur Ingi Magnússon standa að baki fyrirtækinu og leigja húsnæði og tækjabúnað af Óskari Eyþórssyni.
Meira...
Miðvikudagur 9. nóvember 2011
Orgelið komið heim
Nú í morgun var farið með tvo gáma frá Eimskip upp að kirkju sem innihalda pípuorgel Stykkishólmskirkju frá Klais orgelsmiðjunni í Þýskalandi. Í gær komu 4 orgelsmiðir hingað vestur frá Klais og hefjast þeir handa í dag við uppsetningu orgelsins sem á að vera lokið fyrir 18. desember n.k.
Meira...
Þriðjudagur 8. nóvember 2011
Ekki alveg logn
Það var ekki laust við það að lognið ferðaðist ógnarhratt yfir hér í Stykkishólmi seinnipartinn í gær og fram undir morgun í morgun. Hæst fór vindurinn samkvæmt sjálfvirku veðurathugunarstöðinni í 28 m/s eftir miðnættið og þá sló hann í 42 m/s í mestu hviðunum, þess á milli var vindurinn í 25 m/sek að jafnaði!! Þetta er óvenjulegt og máttu björgunarsveitarmenn, lögreglan, Vökustaur og fleiri hafa sig alla við í nótt að bjarga verðmætum og festa hluti. Bátarnir í Skipavík fóru nokkrir af stað, sem og gámur sem þar var staðsettur auk vinnuskúrs. Þakkantur losnaði á Hamraenda og á Íþróttahúsinu og hurðir sem voru harðlæstar opnuðust.
Mánudagur 7. nóvember 2011
Góður en tæpur sigur hjá Snæfelli
Snæfell sigraði Stjörnuna 94-95 í kvöld í leik í C-riðli Lengjubikars karla en leikurinn fór fram í Garðabæ. Eins og tölurnar bera með sér þá voru lokasekúndurnar spennuþrungnar en það var Ólafur Torfason sem skoraði lokastigið af vítalínunni á síðustu andartökum leiksins. Þrátt fyrir að sigurinn væri tæpur þá var hann sanngjarn því Snæfell leiddi allan tímann og náði mest 21 stigs forskoti 38-59 en þegar um tvær mínútur voru eftir náði Stjarnan að komast yfir. En sigurinn var þó á endanum Snæfells sem þar með hefur unnið báða leiki sína í C-riðli Lengjubikarsins.
Miðvikudagur 2. nóvember 2011
Tapast hefur úr hljóðkerfum
Tónlistarskóli Stykkishólms heldur nú utan um stóra hljóðkerfi bæjarins, auk þess sem skólinn á lítið kerfi. Þessi kerfi hafa verið í notkun við hinar ýmsu athafnir og uppákomur og stundum hafa einstaklingar fengið að láni heilt kerfi eða eitt og annað úr kerfunum.
Meira...
Síða 51 af 114:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 - 51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114