Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 14. október 2011
Tónleikar í Stykkishólmskirkju
Kelly Joe Phelps & Corinne West duo mun leggja upp í tónleikaferð um Ísland í október nk. en það er í fyrsta sinn sem tvíeykið sækir landið heim. Eftir áralanga, farsæla ferla sem sólólistamenn ákváðu Kelly Joe og Corinne að taka höndum saman árið 2009 og hafa verið óaðskiljanleg allar götur síðan en þau hafa hlotið mikið lof fyrir frumburð sinn, Magnetic Skyline sem kom út á síðasta ári.  Kelly Joe Phelps er kassagítarunnendum að góðu kunnur hér á landi en hann vakti mikla athygli fyrir sálarríkan söng yfir spennandi lagasmíðar með seiðandi kjöltugítarleik sínum um miðbik 10. áratugarins. Fljótlega upp úr aldamótunum söðlaði hann um og skipti yfir í  gítarleik í hefðbundnum stíl og hefur leikið þannig æ síðan.  Meira...


Föstudagur 14. október 2011
Jól í skókassa 2011
Jól í skókassa 2011 í Stykkishólmi og Helgafellsveit móttaka verður þriðjudaginn 1. nóvenber 2011  kl. 16 - 19Nú er Jól í skókassa 2011 að fara af stað. Verkefnið felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að setja nokkra hluti í skókassa. Meira...


Föstudagur 14. október 2011
Ný fasteignasala í Stykkishólmi
Sverrir Kristjánsson, löggiltur fasteignasali hefur sett upp Fasteignasölu Stykkishólms að Ægisgötu 11 hér í Stykkishólmi. Meira...


Föstudagur 14. október 2011
Elvar Þór Steinarsson heldur útgáfutónleika í Reykjavík

Elvar Þór Steinarsson gaf út nú haust geisladiskinn Elvar í mörgum myndum.  Elvar heldur útgáfutónleika í Fella- og Hólakirkju í Reykjavík þann 17. október nk. kl. 20  Fjöldi fólks kemur fram á tónleikunum með honum og margir sem rekja ættir sínar til Stykkishólms. Meira...


Fimmtudagur 13. október 2011
Hólmarar á bókamessunni í Frankfurt

Fregnir bárust af því til Stykkishólms-Póstsins að búið væri að bóka far fyrir a.m.k. einn Hólmara á bókamessuna í Frankfurt sem nú stendur yfir.  Þegar betur var að gáð stóðst fréttin og á þriðjudagskvöldið náðist í Frankfurtarfarann Pál Margeir Sveinsson, fótboltaþjálfara og tenór sem staðfesti þetta:  „Í lok júlí hafði systir mín samband við mig frá Þýskalandi fyrir hönd Íslendingafélagsins í Frankfurt og vildi vita hvort ég væri tilbúinn að taka þátt í söngverkefni fyrir fyrirtæki sem heitir Rosetta Stone og gefur út tungumálakennsluforrit og þeir væru að leita að söngvara sem kynni ekki þýsku en vildi læra hana fram að bókasýningunni og syngja íslensk lög í básnum þeirra á sýningunni ... Meira...


Miðvikudagur 12. október 2011
Gestakomur í Eldfjallasafnið

Eldfjallasafn Haraldar Sigurðssonar í gamla bíóinu hefur nú verið opið í 3 sumur.  Fyrsta sumarið var einungis opið í 3 mánuði, frá lok maí til byrjun september en s.l. 2 sumur hefur verið opið frá 1. maí til 1. október og er safnið það safna bæjarins sem er með lengstan opnunartíma í vikum talið.  Meira...


Miðvikudagur 12. október 2011
5. bekkur gefur til hjálparstarfs á Haítí

Krakkarnir í 5. bekk hafa ekki slegið slöku við hjá samfélags-fræðikennaranum sínum, henni Sigríði Ólöfu Sigurðardóttur. Á síðasta skólaári í 4. bekk lærðu þau um fréttir og fjölmiðla og fylgdust af miklum áhuga með hjálparstarfinu á Haítí.  Meira...


Miðvikudagur 12. október 2011
Íslandsmótið að byrja
Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn í körfuboltanum hefst í þessari viku þegar fyrsta umferðin verður leikin hjá bæði körlum og konum.  Bæði lið Snæfells byrja með útileik, stelpurnar mættu Val í gærkvöldi og strákarnir leika við Hauka á morgun föstudagskvöld. Meira...


Síða 53 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei