Stykkishólmspósturinn
19. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 26. október 2011
Snæfellingur sýnir folöld

Folald sýningarinnar valið af áhorfendum
Folaldasýning Snæfellings var haldin í Snæfellingshöllinni í Grundarfirði sunnudaginn 23. október. Aðstandendur voru ánægðir með mætingu og gekk sýningin vel. Meira...


Miðvikudagur 26. október 2011
Mikið um að vera s.l. helgi

Tónlistarlíf var með fjörugasta móti s.l. helgi hér í Stykkishólmi og tókust allir tónleikar ljómandi vel. 

Myndir frá tónleikunum eru hér.



Miðvikudagur 26. október 2011
Rökkurdagar hófust í Grundarfirði í gær..

Rökkurdagar Grundfirðinga hófust í gær og standa fram á sunnudag.  Meðal þess sem boðið er upp á er sýningin á myndinni Jón og séra Jón í Sögumiðstöðinni, Kráarviska, trúbadorar og ball á Kaffi 59 og margt fleira.  Nánari dagskrá hér:  http://www.grundarfjordur.is/files/Skra_0050732.pdf



Laugardagur 22. október 2011
Bárður tekinn við Tindastól
Að sögn fréttamiðils Skagfirðinga feykir.is þá hefur Bárður Eyþórsson tekið við sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Tindastóls af Borce Ilievski sem sagði upp stöðu sinni eftir þriðja tapleik liðsins í röð.  Gengið var frá ráðningu Bárðar í dag og mun hann stýra sinni fyrstu æfingu í kvöld.


Föstudagur 21. október 2011
Snæfell tapar stigum
Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands dæmdi í dag Val 20-0 sigur á Snæfelli í IE-deild kvenna.  Leikurinn fór fram í 1.umferðinni og vann Snæfell leikinn 70-79 en Valur kærði úrslit leiksins á þeim forsendum að Kieraah Marlow hefði ekki verið komin með leikheimild fyrir leikinn.  Úrskurðurinn var eins og áður sagði Val í hag og því dæmast tvö stig af Snæfelli í deildinni sem fer þá af toppnum í hóp liðanna sem eru með einn sigur í fyrstu tveimur umferðunum.


Mánudagur 17. október 2011
Stórtónleikar fyrir orgelsjóð

Fleiri myndir ->>
Næstkomandi föstudag, 21. október kl. 20:00 verða haldnir stórtónleikar í Stykkishólmskirkju til ágóða fyrir orgelsjóð kirkjunnar. Hólmarar hafa nú í nokkur ár staðið í söfnun fyrir nýju orgeli sem hæfir nýju kirkjunni og nú er komið að lokasprettinum, þar sem nýja orgelið er einmitt nú í vikunni að leggja af stað heim frá Þýskalandi Meira...


Föstudagur 14. október 2011
Tónleikar í Stykkishólmskirkju
Kelly Joe Phelps & Corinne West duo mun leggja upp í tónleikaferð um Ísland í október nk. en það er í fyrsta sinn sem tvíeykið sækir landið heim. Eftir áralanga, farsæla ferla sem sólólistamenn ákváðu Kelly Joe og Corinne að taka höndum saman árið 2009 og hafa verið óaðskiljanleg allar götur síðan en þau hafa hlotið mikið lof fyrir frumburð sinn, Magnetic Skyline sem kom út á síðasta ári.  Kelly Joe Phelps er kassagítarunnendum að góðu kunnur hér á landi en hann vakti mikla athygli fyrir sálarríkan söng yfir spennandi lagasmíðar með seiðandi kjöltugítarleik sínum um miðbik 10. áratugarins. Fljótlega upp úr aldamótunum söðlaði hann um og skipti yfir í  gítarleik í hefðbundnum stíl og hefur leikið þannig æ síðan.  Meira...


Föstudagur 14. október 2011
Jól í skókassa 2011
Jól í skókassa 2011 í Stykkishólmi og Helgafellsveit móttaka verður þriðjudaginn 1. nóvenber 2011  kl. 16 - 19Nú er Jól í skókassa 2011 að fara af stað. Verkefnið felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að setja nokkra hluti í skókassa. Meira...


Síða 54 af 116: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116





19. júní:
- Söguferð um Búðahraun

- Ferðafélag Snæfellsness Fjarðarhornsgata kl. 20 frá Mjósundabrú.


21. júní:
- Sólstöðuganga á Hreggnasa í Þjóðgarðinum kl.21


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei