Föstudagur 30. september 2011
Nýir vökustaurar
Nú um mánaðamótin taka nýjir aðilar við rekstri Vaktþjónustunnar Vökustaurs sem rekin hefur verið í Stykkishólmi um árabil. Nýir eigendur eru Agnar og Svala í Helluskeifum. Umboð Morgunblaðsins flyst með Vökustaur til Agnars og Svölu
Föstudagur 30. september 2011
Knattspyrna
Meistaraflokkur Víkings Ólafsvík hóf tímabilið með því að leika í Futsal og var mikið leikið í nóvember og desember 2010 og endaði Víkingur í 2. sæti á Íslandsmótinu í Futsal eftir tap á móti Fjölni í úrslitaleik 3-2. Þess ber einnig að geta að 2. flokkur Snæfellsnes var Íslandsmeistari í Futsal.
Meira...
Föstudagur 30. september 2011
Málflutningsstofan flytur
Málflutningsstofa og Fasteignasala Snæfellsness sem verið hefur til húsa í Egilshúsi um ára skeið mun flytja í Skipavíkurhúsið á Aðalgötu 24 og munu Snyrtistofan Anka og Fasteignasalan deila húsnæði, eftir breytingar á því. Skv. fundargerð Skipulags og byggingarnenfndar mun hafa verið samþykkt þar að setja milliloft og bæta við glugga vegna þessara tilfæringa. Við þessar breytingar verður rekstri verslunar og gallerís í tengslum við starfsemi snyrtistofunnar hætt. am
Fimmtudagur 29. september 2011
Endursmíði trébátsins Sumarliða
Vélbáturinn Sumarliði SH110 var upphaflega smíðaður sem áraskip, sennilega sexæringur. Báturinn var þó örugglega smíðaður fyrir 1875 að því er fram kemur í óprentuðum æviminningum Skúla Skúlasonar (1875-1950) skipstjóra í Stykkishólmi, hugsanlega 1860-1870
Meira...
Fimmtudagur 29. september 2011
Söngvaseiður 12. nóvember 2011
Dagsetning fyrir Söngvaseið 2011 hefur verið ákveðin 12. nóvember. Miðað við fengna reynslu er ástæða til að fólk geti farið að láta sig hlakka til og taka daginn frá. Opnað verður fyrir skráningu mánudaginn 3. október.
Meira...
Miðvikudagur 28. september 2011
Uppsagnir í Arion banka í Stykkishólmi
Fyrr í þessum mánuði fengu 57 starfsmenn Arion banka afhent uppsagnarbréf. Þetta eru 38 starfsmenn í höfuðstöðvum og 19 á öðrum starfsstöðvum. Vinnumálastofnun hefur þegar verið tilkynnt um uppsagnirnar. Í þessum hópi voru tveir starfsmenn bankans í Stykkishólmi.
Meira...
Miðvikudagur 28. september 2011
Tjaldsvæðið síðustu tvö ár
Það er ekki mikill munur á milli áranna 2010 og 2011 á fjölda gesta eða gistinátta, þó má sjá að fjöldi gesta og gistinátta í júní og júlí er heldur minni í ár en í fyrra. Einnig að ágúst er talsvert betri en árið á undan og má draga þá ályktun að þar muni um Danska daga sem haldnir voru í ár en ekki í fyrra. Viðbót á árinu 2011 og ekki er inni í línuritinu eru tölur frá maí, en engir gestir voru í maí 2010. Þeir voru hinsvegar 95 á þessu ári og gistinætur voru 115.
Meira...
Miðvikudagur 28. september 2011
Norðurljós verða næst haldin 2012
Menningarhátíðin Norðurljós sem haldin var í fyrra í fyrsta skiptið verður væntanlega haldin annaðhvert ár.
Meira...
Síða 55 af 114:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 - 55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114