Mánudagur 20. júní 2011
Fer ekki sumarið að koma?
Nokkrir hafa eflaust sólbrunnið í gær í blíðunni hér í Stykkishólmi. En sumarið hefur svo sannarlega látið bíða eftir sér í ár. Það breytir því þó ekki að sumarfrí eru á næsta leiti og á það einnig við um útgáfu Stykkishólms-Póstsins. Fram að mánaðamótum júlí/ágúst kemur prentaða útgáfan á eftirfarandi dögum: 23. júní - 7. júlí - 28. júlí Vefurinn er að sjálfsögðu uppfærður eins og efni og aðstæður gefa tilefni til - þótt prentaða útgáfan fari í sumarfrí.
Miðvikudagur 15. júní 2011
Matis í Stykkishólmi í sumar
Matís verður með starfsmenn í sumar staðsetta í Stykkishólmi tilbúna til að aðstoða matvælaframleiðendur og aðila sem hafa hug á að reyna fyrir sér með framleiðslu og vöruþróun. Matís hefur lagt mikla áherslu á það að vera í góðu sambandi við smáa og stóra matvælaframleiðendur um allt land og er þetta liður í því að byggja upp góð tengsl við matvælaframleiðendur í Stykkishólmi og nágrenni.
Meira...
Miðvikudagur 15. júní 2011
Fjöldi Hólmara útskrifaðist frá HÍ
Metfjöldi kandídata var brautskráður frá Háskóla Íslands s.l. laugardag. Alls voru 1.816 prófskírteini afhent, 1.138 í grunnnámi og 678 í framhaldsnámi. Í kandidatshópnum voru a.m.k. 12 Hólmarar meðal kandidata s.l. laugardag og hafa líklega aldrei verið fleiri.
Meira...
Miðvikudagur 15. júní 2011
Samstarf heimafyrirtækja útnefnt
S.l. föstudag var frumkvöðladagur Vesturlands haldinn í Brúðusetrinu í Borgarnesi. Var Frumkvöðull Vesturlands 2010 valinn en það var Brúðusetrið í Borgarnesi sem hlaut þann titil að þessu sinni. Tilnefningar voru nokkrar og ein til fyrirtækja í Stykkishólmi sem unnið hafa saman að ýmsum verkefnum. Þessi fyrirtæki sem sameiginlega hlutu tilnefningu voru: Anok margmiðlun, Friðborg, Íslensk bláskel, Leir7, Mjöður og Narfeyrarstofa. Á myndinni eru Anna frá Anok, Sigríður úr Leir 7 og Selma frá Narfeyarstofu við þetta tilefni.
Meira...
Miðvikudagur 15. júní 2011
Fjölmenni við opnun Æðarseturs Íslands
Á annan í hvítasunnu var opnað í Norska húsinu Æðarsetur Íslands. Feðginin Erla Friðriksdóttir og Friðrik Jónsson standa að setrinu en þau reka sem kunnugt er æðardúnshreinsunarstöð hér í Stykkishólmi og hafa einnig stofnað fyrirtækið Queen Eider utan um vörur til neytenda m.a. og má þar t.d. nefna framleiðslu æðardúnssænga ásamt fleiru.
Meira...
Þriðjudagur 14. júní 2011
Ferðafélag Snæfellsness með Hönnu Jóns í broddi fylkingar
Hanna Jóns "Yfirhebbi" fer fyrir göngu á fimmtudagskvöldið um Berserkjahraun á vegum Ferðafélags Snæfellsness. Gangan er auðveld og hentar fjölskyldum vel.
Meira...
Laugardagur 11. júní 2011
Fiðraðir vinir í vanda
Þetta vor hefur verið í kaldara lagi og ískalt samanborið við allra síðustu ár. Gróður tekur síðar við sér og varpi fugla seinkar sem því nemur eða verður erfiðara. Líklega kemur kuldinn mjög misjafnlega niður á ólíkum tegundum fugla; margir af stærri fuglunum þrauka en sumir af þeim minni seinka varpi eða hreinlega hætta við varp.
Meira...
Föstudagur 10. júní 2011
Fiðrildavöktun og Vatnshellirinn opnaður í þjóðgarðinum
Fiðrildagildra hefur verið sett upp í þjóðgarðinum Snæfellsjökli í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands en slíkar gildrur eru komnar allvíða um landið. Hellaferðir í Vatnshelli eru hafnar í ný og verða alla daga þetta sumarið.
Meira...
Síða 65 af 113:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 - 65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113