Stykkishólmspósturinn
21. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 9. mars 2011
Örfáar myndir frá Nettómótinu um helgina

Smelltu á myndina til að skoða!
Eins og gefur að skilja þá er ómögulegt að fylgjast með 10 liðum í einu.. hér eru myndir af nokkrum af þeim á Nettómótinu nýliðna helgi...Væntanlega fleiri myndir sem koma munu inn á snaefell.is Meira...


Þriðjudagur 8. mars 2011
Bikarmeistarar nú deildarmeistarar

Snæfell heldur áfram að safna titlum og einn bættist í safnið í gær.  Stelpurnar í unglingaflokki Snæfells halda áfram sigurgöngu sinni, þær urðu sem kunnugt er bikarmeistarar í lok febrúar og gærkvöldi bættu þær deildarmeistaratitlinum við með góðum sigri á Haukum 65-47. Meira...


Sunnudagur 6. mars 2011
Snæfell Deildarmeistari

Úrslit kvöldsins í IE-deild karla féllu þannig að Snæfell tryggði sér Deildarmeistaratitilinn í kvöld með sigri á Hamri 76-64.  En þrátt fyrir að Snæfell hafi unnið vinnusigur á Hamri þá dugði sá sigur ekki einn og sér til að landa titlinum, það sem réði úrslitum var sigur ÍR á KR og þar með missti KR möguleikann á Deildarmeistaratitlinum í ár þegar ein umferð er eftir. Meira...


Föstudagur 4. mars 2011
Northern Wave hefst í dag

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave hefst kl.18 í dag í Grundarfirði og sem fyrr kennir margra grasa úr innlendri sem erlendri stuttmyndaflóru. Þá hefur hátíðin einnig þá sérstöðu hérlendra kvikmyndahátíða að tónlistarmyndbönd fá einnig sinn sess og verða veitt verðlaun í báðum þessum flokkum. Meira...


Fimmtudagur 3. mars 2011
Góð úrslit fyrir Snæfell
Grindavík sigraði KR 104-105 í kvöld í IE-deild karla og þokaði sér með sigrinum í 3.sæti deildarinnar.  Tap KR gefur Snæfelli möguleika á að ná 4 stiga forskoti á KR í efsta sætinu vinni Snæfell Stjörnuna á morgun. Meira...


Miðvikudagur 2. mars 2011
Hugur í ferðafélagsfólki á Snæfellsnesi
Ferðaáætlun Ferðafélags Snæfellsness er komin út og hægt er að sjá hana á vef félagsins ffsn.is Fyrirhuguð er vinna á vegum félagsins við lagningu nýrrar gönguleiðar um Snæfellsnesfjallgarð auk þess sem kynningarfundir verða haldnir á næstunni í Stykkishólmi og Grundarfirði. Meira...


Miðvikudagur 2. mars 2011
Sælgæti og skyndibitar hafa áhrif á umhverfið
Í nýrri norrænni skýrslu kemur fram að sælgæti og skyndibitar valdi miklu meiri skaða á umhverfi okkar en holl fæða. Slík umhverfisáhrif hafa aldrei verið skjalfest áður. Íslendingar borða langmest Norðurlandaþjóða af sælgæti og óhollri fæðu. Meira...


Miðvikudagur 2. mars 2011
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur fagnar 80 ára afmæli með glæsilegri ráðstefnu um atvinnumál og nýsköpun undir yfirskriftinni Nýtum tækifærin, hefjum sókn í atvinnumálum.

Afmælisnefnd skipuð þeim Sturlu Böðvarssyni, Írisi Huld Sigurbjörnsdóttur og Símoni M. Sturlusyni hefur undirbúið dagskrá að ráðstefnu sem haldin verður laugardaginn 5. mars n.k. á Hótel Stykkishólmi.  Þar verður leitast við að svara spurningunni:  Hvernig sköpum við ný atvinnutækifæri í Stykkishólmi og nágrenni og styrkjum um leið samfélagið á Snæfellsnesi?  Alls eru þrettán erindi ólíkra fyrirlesara sem leitast við að svara þessari spurningu. Meira...


Síða 72 af 113: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113