Stykkishólmspósturinn
20. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 11. febrúar 2011
112 dagurinn: Skyndihjálparmaður ársins valinn af Rauða krossinum.

Sæþór Þorbergsson
Rauði kross Íslands hefur valið Ólaf Guðnason sem Skyndihjálparmann ársins 2010 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar hann lenti í bílslysi fjarri byggð í fyrrasumar.  Sex aðrir einstaklingar hlutu einnig viðurkenningar hjá deildum Rauða krossins fyrir að hafa beitt skyndihjálp og bjargað lífi á eftirtektarverðan hátt.  Meira...


Föstudagur 11. febrúar 2011
Margt á döfinni á Hólmurum 60 ára og eldri
Eins og sjá má í Stykkishólms-Póstinum sem út kom í gær er margt á döfinni hjá aldurshópnum 60 ára og eldri hér í Stykkishólmi á næstunni.  Má þar nefna að súpudagar verða teknir upp í Safnaðarheimili Stykkishólmskirkju á þriðjudögum í hádeginu og fyrsti súpudagur 15. febrúar, Lesið verður í náttúruna á miðvikudögum í setustofu Dvalarheimilisins kl. 10:30 og hver veit nema vísir að veðurklúbbi sér þarna að fæðast!  Meira...


Föstudagur 11. febrúar 2011
Enn hvessir

Það er búið að vera hvasst sunnanlands í nótt en hér í Stykkishólmi var þó fremur rólegt í nótt en vindurinn hinsvegar að færast í aukana nú með morgninum.  Klukkan 8 var vindurinn 14 m.á sek að austan og mun svo færast í aukana sé miðað við spánna á belging.is.  Samkvæmt belgingi verður vindurinn kominn í hámark um kl.11 þegar reikna má með að hann geti orðið mili 25-30 metrar á sekúndu. Meira...


Fimmtudagur 10. febrúar 2011
Rafmagnslaust í u.þ.b. 20 mínútur
Rafmagn fór af Stykkishólmi rétt fyrir kl.21 í kvöld og var svarta myrkur í bænum þar til rafmagnið kom á að nýju um 20 mínútum síðar.  Er talið líklegt að óróleiki í flutningsneti Landsnets vegna veðurs hafi orsakað rafmagnsleysið.


Fimmtudagur 10. febrúar 2011
Tilboð í gerð smábátaviðlegu í Stykkishólmshöfn voru opnuð í morgun.
Um er að ræða að steypa landstöpul, færa núverandi flotbryggju og útvega nýja 50 m flotbryggju ásamt landgangi og setja niður við núverandi stöpul.Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2011.

Lægsta tilboð barst frá Skipavík upp á kr. 15.761.850 en kostnaðaráætlun hönnuða var upp á kr. 23.659.000 

Meira...


Fimmtudagur 10. febrúar 2011
Haraldur fjallar um Komodo drekann

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, hefur haldið mjög áhugverða fyrirlestra í Eldfjallasafninu undanfarna tvo laugardaga og hafa þeir verið mjög vel sóttir og hvert sæti skipað.  Nú á laugardaginn 12.febrúar heldur Haraldur þriðja fyrirlesturinn og í þetta skiptið mun hann fjalla um Komodo drekana sem er að finna á Komodo eyjaklasanum, einum þekktasta þjóðgarður Indónesíu.  Meira...


Þriðjudagur 8. febrúar 2011
Fuglaríki í Stykkishólmshöfn

Það var mikið um að vera í höfninni í blíðunni í gær.  Mikill skarfafjöldi var þar sestur upp á steina og æðarfuglinn í hundruðum á sundi í höfninni og mátti heyra að mikið var í gangi, því fuglahljóðin vöktu ekki síður athygli en fjöldinn. Meira...


Fimmtudagur 3. febrúar 2011
Þorrajökull fær góða dóma í Fréttatímanum
S.l. föstudag var umfjöllun um íslensku þorrabjórana í ár í vikublaðinu Fréttatíminn. Þorrajökull frá Miði í Stykkishólmi fær þar hæstu einkunn allra íslensku þorrabjóranna og eru aðstandendur brugghússins að vonum ánægðir með þann góða árangur. Í stuttu spjalli Þorrajökull fær góða dóma í Fréttatímanum við Stykkishólms-Póstinn kom fram að nú er allur bjór í brugghúsinu bruggaður undir stjórn hins nýja þýska bruggara sem kom frá Þýskalandi í nóvember s.l. Segja aðstandendur að þarna sé sannkallaður fagmaður á ferð og hafi hann gert ýmsar breytingar til hins betra í ferlinu með bruggunina.  Meira...


Síða 74 af 113: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113





20. maí:
- Annar í Hvítasunnu

- Opið í Nesbrauð 9-16

- Fermingarmessa í Helgafellskirkju kl. 14

- Heitt á könnunni hjá Huldu í Safnaðarheimilinu kl. 15-17


21. maí:
- Útisundlaug lokuð v. viðgerða


24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei