Miðvikudagur 26. janúar 2011
55 lundar í smíðum!
Ljósmynd: Trausti TryggvasonÁ síðastliðnu hausti byrjaði hópur nemenda í smíðavali 10. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi á fjölbreyttu verkefni sem tengist nánasta umhverfi skólans. Verkefnið er samstarf við Árna Ásgeirsson (fyrrum nemanda skólans) og Háskólasetur Snæfellsness. Einnig koma Sæferðir að verkefninu þar sem horft er meðal annars til þátta ferðaþjónustunnar. Árni mun leiða verkefnið, en verkefni Árna tengist lundum. Árni hefur í tengslum við nám sitt í hyggju að efla varpstofn lundans.
Meira...
Þriðjudagur 25. janúar 2011
Kvöldstund með lundum
Ljósmynd: Róbert StefánssonFrá því var greint í Stykksihólms-Póstinum fyrir nokkru að Árni Ásgeirsson Hólmari og líffræðinemi hefði skrifað ritgerð nú fyrir jól um lunda við Breiðafjörð. Nú er svo komið að Árni ásamt Erpi Snæ Hansen, líffræðingi hjá Náttúrustofu Suðurlands munu halda fyrirlestur á Ráðhúsloftinu á miðvikudagskvöldið. Vaflaust forvitnileg framsöguerindi þar á ferð og hefst dagskráin kl. 20 og eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Meira...
Föstudagur 21. janúar 2011
Veiði án kvóta!
Um hádegið í dag á fjöru var mikill fuglahópur í höfninni. Skv. heimildum Stykkishólms-Póstsins voru að mati sérfræðinga, yfir 1000 fuglar. Stærstu hóparnir voru af Toppskarfi og æðarfugli en auk þeirra mátti sjá um 200 hvítmáfa, 50 bjartmáfa, silfurmáf og hrafna. Allur skarinn var á mjög litlu svæði og greinilega spennandi æti í þaraskóginum þarna í fjöruborðinu. Hrafnarnir voru að snæða 10-15 cm bolfiska en fjöruborðið iðaði af lífi og við að dýfa hendi í sjó var gripið um lýsu. Enginn fuglanna gat framvísað veiðileyfi, svo það er spurning hvað starfsmenn Fiskistofu sem eru innan við 100 metra frá vettvangi veiðanna gera í málunum.
Meira...
Miðvikudagur 19. janúar 2011
Mörsugur að enda og Þorri að hefjast...
Það var kuldalegt um að litast í Maðkavíkinni í gær þar sem íshröngl maraði í hálfu kafi í sjónum. Ósjálfrátt kemur upp í hugann hendingin „Nú er frost á fróni, frýs í æðum blóð“
Miðvikudagur 19. janúar 2011
Loksins snjór!
Krakkarnir í grunnskólanum biðu ekki boðanna þegar snjórinn loksins kom og tíndu fram sleða og þotur til að renna í hótelbrekkunni, bæði á skólatíma og ekki síður eftir skóla. Í gær var síðasti séns í bili, því spáin boðaði leysingar.
Þriðjudagur 18. janúar 2011
Brúnleitur Hrafn í Stykkishólmi
Frá Háskólasetri Snæfellsness barst eftirfarandi tilkynning: Í Landeyjarsundi við Stykkishólm, við fiskiðjuna Þórsnes, sást þann 11.janúar einn brúnleitur hrafn, ásamt nokkrum venjulegum, svörtum að lit. Höfuð var albrúnt en bakið var ljósleitara, þó mun dekkra en ungu bjartmáfarnir á sjónum í kring.
Í gær 16. janúar var hann svo á flögri ásamt svörtum félögum sínum við gatnamót Silfurgötu og Lágholts, og sást litamunurinn vel. Fólk ætti því að hafa augun hjá sér þegar hrafnar fljúga yfir þessa dagana.
Mánudagur 17. janúar 2011
Haraldur Sigurðsson hlýtur heiðursdoktorsnafnbót við Jarðvísindadeild HÍ
Laugardaginn 22. janúar 2011 veitir Jarðvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Dr. Haraldi Sigurðssyni jarðfræðingi og prófessor emeritus við háskólann í Rhode Island, doktorsnafnbót í heiðursskyni.
Fréttin á vef HÍ
Laugardagur 15. janúar 2011
Snæfellsstelpur í Stjörnuleik
Snæfell á tvo leikmenn, þær Berglindi Gunnarsdóttur og Björgu G. Einarsdóttur á Stjörnuleikshátíð kvennakörfuboltans sem sem fer fram í Ásgarði í Garðabæ í dag. Í Stjörnuleiknum mætast lið Reykjanesúrvals og Landsins og þar munu þær systur Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur etja kappi í sitt hvoru liðinu.
Meira...
Síða 76 af 114:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 - 76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114