Miðvikudagur 22. desember 2010
Jólakveðja
Þriðjudagur 21. desember 2010
Fjölgun í Stykkishólmi og Snæfellsnesi
Samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar sem koma út í desember á hverju ári voru íbúar í Stykkishólmi alls 1103 nú 1.desember og er það fjölgun um 13 frá í fyrra þegar íbúar voru 1090 á sama tíma.
Meira...
Laugardagur 18. desember 2010
Útskrift í Fjölbrautarskóla Snæfellinga
Föstudaginn 17. desember brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 12 nemendur, alla með stúdentspróf. Af félagsfræðabraut útskrifuðust þau Ari Baldur Baldursson, Fanney Sumarliðadóttir, Guðný Ólafía Guðjónsdóttir, Heimir Þór Ásgeirsson, Hjálmdís Ólöf Ágústsdóttir og Ingveldur S. Sigurðardóttir. Af náttúrufræðibraut útskrifuðust þau Birgir Pétursson, Guðrún Erla Ólafsdóttir, Hafþór Finnbogason, Saga Björk Jónsdóttir og Snædís Vagnsdóttir. Einn nemandi útskrifaðist með viðbótarnám til stúdentprófs, Steinar Björnsson.
Á myndinni eru: Guðrún Erla Ólafsdóttir, Hafþór Finnbogason dux skólans, Fanney Sumarliðadóttir
Meira...
Föstudagur 17. desember 2010
Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2011 samþykkt.
Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2011 var eins og áætlanir fyrri ára unnin í góðu samstarfi meirihluta og minnihluta bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar. Áætlunin var unnin við mjög sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu þar sem mikill samdráttur er í efnahagslífinu og óvissa er mikil. Stykkishólmsbær þarf eins og önnur sveitarfélög að taka tillit til þessa raunveruleika í áætlunum sínum fyrir árið 2011. Vitað er að tekjusamdráttur verður á árinu 2011. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að fylgjast gaumgæfilega með framvindu kostnaðar og vera með áætlunina í sífelldri endurskoðun ef þörf er á. Einnig er mjög mikilvægt að menn standi saman og vinni saman að því aðverja þjónustu við íbúana í bænum. Við áætlanagerðina var gengið út frá því að bæjarfélagið bjóði íbúum upp á sömu þjónustu og áður. Bæjarstjórn þakkar forstöðumönnum stofnana og skólastjórnendum fyrir þeirra hlutdeild við að gæta aðhalds í rekstri og þar með gera það mögulegt að halda áfram óbreyttu þjónustustigi við íbúa Stykkishólms.
Meira...
Miðvikudagur 15. desember 2010
Stykkishólmsbær bótaskyldur
Hæstiréttur Íslands úrskurðaði þann 9.desember í máli Stykkishólmsbæjar gegn fyrrum forstöðukonu Dvalarheimilis Stykkishólms. Stykkishólmsbær áfrýjaði dómi Héraðsdóms Vesturlands sem felldur var 7.desember 2009 til Hæstaréttar en í þeim dómi var Stykkishólmsbær dæmdur bótaskyldur og gert að greiða forstöðukonunni 5.800.000 krónur með dráttarvöxtum auk 800.000 krónur í málskostnað. Samkvæmt dómi Hæstaréttar nú þá ber Stykkishólmsbæ að greiða forstöðukonunni bætur upp á 3.800.000 krónur með dráttarvöxtum auk 1.200.000 króna í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Föstudagur 3. desember 2010
Jólatré frá Drammen tendrað
Jólatréð frá Drammen var tendrað í Hólmgarði í gær að viðstöddum bæjarbúum á öllum aldri. Tónósextettinn lék nokkur létt lög og svo var tréð tendrað af nemendum 1. bekkjar GSS. Stiginn var dans í kringum tréð í hópi jólasveina sem komu askvaðandi og gáfu að lokum öllum börnum mandarínu.
Mánudagur 29. nóvember 2010
Jólatré frá Drammen komið í Hólminn!
Það er alltaf nokkur eftirvænting í hugum margra hvernig jólatréð frá vinabæ Stykkishólms lítur út. Er það hátt, feitt, mjótt eða stutt? Það var nú frekar erfitt að greina það í þá flokka þegar ljósmyndara Stykkishólms-Póstsins var litið út um gluggann og sá hvar vörubíll kom með tréð góða.. En komið er það í bæinn og því hægt að reisa það í Hólmgarði til að tendra á fimmtudaginn næstkomandi.
Hér má sjá frétt Drammen um það þegar tréð var fellt með viðhöfn.
Sunnudagur 28. nóvember 2010
Snæfell - Stjarnan í kvöld
Íslandsmeistarar Snæfells fá Justin Shouse og félaga hans í Stjörnunni í heimsókn í kvöld kl.19:15 þegar 9.umferðin hefst í IE deild karla. Mikið stigaskor hefur einkennt leiki Snæfells til þessa og hefur Snæfell skorað að meðaltali 98,6 stig í leik sem er frábært en verra er að liðið hefur verið að fá á sig 91,4 stig að meðaltali. Snæfell hefur til þessa spilað þrjá heimaleiki í deildinni og unnið þá alla. Leikir Snæfells eru því ætið mikil skemmtun fyrir áhorfendur og því ætti
enginn stuðningsmaður liðsins að láta sig vanta í kvöld.
Meira...
Síða 78 af 114:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 - 78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114