Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Laugardagur 27. nóvember 2010
Kjörfundi lokið
Kjörsókn í kosningu til stjórnlagaþings virðist hafa verið í dræmara lagi yfir landið og verða kringum 40% en endanlegar tölur um það ættu að liggja fyrir um hádegisbil á morgun.  Í Reykjavík var hún um 30% klukkustund fyrir lokun kjörstaða.  Við lokun kjörfundar hér í Stykkishólmi klukkan 22 höfðu 233 kosið af þeim 816 sem voru á kjörskrá og að auki kusu 41 utan kjörfundar.  Kjörsókn var því 33,6% í Stykkishólmi.


Laugardagur 27. nóvember 2010
Róleg kjörsókn
Kjörsókn til kosninga á stjórnlagaþing er búin að vera fremur róleg um land allt og var t.d. aðeins komin í 15-!6% í Reykjavík kl.16 samkvæmt Rúv.  Kjörsókn í Stykkishólmi hefur verið á svipuðum nótum, frekar róleg en þó aðeins meiri en í höfuðborginni.  Klukkan 16:30 höfðu 150 kosið í Stykkishólmi sem gerir um 18,4% kjörsókn en 816 manns eru á kjörskrá.


Laugardagur 27. nóvember 2010
Jón Ólafur vinsælastur

Hin árlegi Stjörnuleikur körfuboltamanna fer fram þann 11.desember n.k.. Þar munu mætast úrvalslið af höfuðborgarsvæðinu annarsvegar og landsbyggðinni hinsvegar.  Valið í liðin fór fram með atkvæðakosningu á netinu og greiddu 2.535 atkvæði.  Jón Ólafur alias Nonni Mæju hlaut  flest atkvæði allra í kosningunni og flaug því að sjálfsögðu inn í byrjunarlið landsbyggðarinnar. Meira...


Föstudagur 26. nóvember 2010
Leikfélagið frumsýnir tvö leikverk

Það er nóg um að vera hjá Leikfélaginu Grímni þessa dagana.  Auk þess að vera að frumsýna tvö verk á  næstu dögum þá var fyrsta leikverk vetrarins frumsýnt fyrir 2 vikum síðan.  Kvöldhúmið sem frumsýnt var á Norðurljósahátíðinni hefur nú verið sýnt allnokkrum sinnum en einnig var farið með það á dvalarheimilið og það sýnt þar í liðinni viku við góðar undirtektir.
Meira...


Fimmtudagur 25. nóvember 2010
Frábær sigur hjá stelpunum

Snæfellsstelpurnar gerðu góða ferð til Njarðvíkur í gær í Iceland Expressdeildinni og unnu þar 22 stiga sigur á Njarðvík 60-82 og hefndu þar heldur betur fyrir tapið gegn þeim hér heima.  Snæfell er þó enn í 6.sætinu en nú einungis 2 stigum frá Haukum og Njarðvík í 4.-5.sæti.  Tölfræðin


Fimmtudagur 25. nóvember 2010
Sjálfstæð þjóð án fullveldis?
Það tók Íslendinga aldir að öðlast sjálfstæði undan oki erlendra afla. Það er þó spurning á hvaða tímapunkti sjálfstæðið varð að veruleika, hvenær við urðum raunverulega sjálfstætt ríki. Var það við stofnun lýðveldisins árið 1944, eða var það kannski enn síðar?
sjá stjórnlagaþing


Fimmtudagur 25. nóvember 2010
Ályktun fundar Kennarafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Kennarafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga mótmælir þeim hugmyndum sem settar eru fram í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar um niðurskurð á fjárveitingum til framhaldsskóla. Upptökusvæði skólans er stórt eða Snæfellsnes og sunnanverðir  Vestfirðir. Hætta er á að niðurskurðurinn muni hafa í för með sér minna námsframboð og miklar líkur á því að nemendum verði neitað um skólavist. Framhaldsskólar eru grunnþáttur í menntakerfi þjóðarinnar og brýn nauðsyn er að tryggja öllum ungmennum ásættanleg tækifæri til menntunar. Því er stefnt í hættu með þessum niðurskurði. 
                             
                              Miðvikudaginn 24. nóvember 2010.
                              Fyrir hönd Kennarafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga,
                              Hrafnhildur Hallvarðsdóttir


Miðvikudagur 24. nóvember 2010
Þarf að breyta stjórnarskrá lýðveldisins núna?

Ég myndi segja að endurskoðun stjórnarskrárinnar sé ekki eitt af mikilvægustu úrlausnarefnunum núna.  Þjóðin er í ákveðnu uppnámi eftir hrunið og í slíku ástandi eiga menn helst ekki að taka stórar ákvarðanir. sjá stjórnlagaþing 


Síða 79 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei