Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Þriðjudagur 23. nóvember 2010
Ætlar þú að kjósa?

Í fyrsta sinn fær íslenska þjóðin að setja sér stjórnarskrá. Alþingi hefur vísað þessum rétti til þjóðarinnar. Ákvörðun Alþingis er augljóslega tilraun til að rétta fram hönd til sátta í samfélaginu. Það er því mikilvægt að þjóðin fagni þessu tilboði og fjölmenni til þess að velja fulltrúa til að tala sínu máli við gerð þess sáttmála sem stjórnarskrá er.  sjá stjórnlagaþing 


Föstudagur 19. nóvember 2010
Stórmál fyrir Jón Pál

Það reyndist heldur betur hafa hlaupið á lúðukrókinn hjá Eiríki Helgasyni í vikunni þegar hann vitjaði um haukalóðir sínar norðan við Bjarneyjar.  Sannkölluð stórlúða hafði bitið á og gekk Eiríki bölvanlega að ná henni um borð og varð að gefast upp við það eftir tveggja tíma streð og varð því að hafa lúðuna á síðu bátsins. Meira...


Föstudagur 19. nóvember 2010
Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar

Undanfarnar vikur og þær næstu er unnið að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar. Vinnubrögð eru svipuð og undanfarin ár, þ.e. bæjarráð vinnur að áætluninni í samráði við forstöðumenn stofnana og starfsfólk bæjarskrifstofu. Þessi aðferð hefur gefist vel og skilað ágætum árangri.  sjá aðsent efni


Fimmtudagur 18. nóvember 2010
Kosningar til stjórnlagaþings laugardaginn 27. nóvember
Ég er einn þeirra rúmlega 500 einstaklinga sem gefa kost á sér til stjórnlagaþings og jafnframt sá elsti í hópnum. Í örfáum orðum langar mig að vekja athygli kjósenda á málum, sem ég ber sérstaklega fyrir brjósti,... sjá stjórnlagaþing


Fimmtudagur 18. nóvember 2010
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin fyrir kosningu til Stjórnlagaþings
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin og fer fram á skrifstofu sýslumanns Borgarbraut 2 Stykkishólmi virka daga kl. 10:00 - 15:30


Fimmtudagur 18. nóvember 2010
Stöndum vörð um landsbyggðina með 8056

Komandi stjórnlagaþing er stórkostlegt tækifæri fyrir okkur almenning í þessu landi til að hafa áhrif á hvernig samfélagi við viljum búa í og hvaða gildi við viljum að verði undirstaða samfélags niðja okkar. sjá stjórnlagaþing


Sunnudagur 14. nóvember 2010
Snæfell sigraði ÍR 94-107 - uppfært
Það var erfitt að fylgjast með leik Snæfells gegn ÍR í Seljaskólanum í kvöld, engin tölfræði á vef KKÍ eða önnur umfjöllun um gang mála.  Snæfell átti lengi vel á brattan að sækja en það hefur gjarnan verið svo í leikjum liðsins til þessa í vetur að Snæfellsliðið sækir í sig veðrið á lokasprettinum og svo varð nú.  Í stöðunni 90-89 fyrir ÍR og rúmar 4 mín eftir tók Snæfell mikinn kipp og vann þær mínútur sem eftir voru 18-4 og þar með leikinn 94-107.  Snæfell heldur því toppsæti deildarinnar eftir 7 umferðir.  Tölfræðin


Laugardagur 13. nóvember 2010
Leggjum styrkari stoðir undir íslenskt samfélag

Ég býð mig fram til stjórnlagaþings með það að markmiði að styrkja undirstöðu íslensks samfélags.  Stjórnarskráin leggur gruninn að Íslensku samfélagi sem ég vil þróa í átt að aukinni þátttöku almennings í stjórn landsins,... sjá stjórnlagaþing


Síða 80 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei