Laugardagur 16. október 2010
Nýr leikmaður til kvennaliðs Snæfells
Kvennalið Snæfells fær í dag nýjan leikmann Sade Logan sem mun leysa Jamie Braun af hólmi. Sade mun vonandi geta tekið að sér leiðtogahlutverkið í liðinu sem hefur vantað í leikjum liðsins fram að þessu. Sade er bakvörður 182 cm á hæð og lék síðast með Robert Morris College og var þar með 22,7 stig og 8 fráköst að meðaltali í leik. Nánar á heimasíðu
Snæfells
Föstudagur 15. október 2010
15 þúsund tonnum úthlutað
Í tilkynningu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra hafi í dag tekið ákvörðun um að úthluta 15.000 lesta afla
í sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Er það að sögn ráðuneytisins upphafsúthlutun í
sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið en ákvörðun um endanlega úthlutun heildarafla
liggur ekki fyrir.
Föstudagur 15. október 2010
Landsbyggðarfólk í minnihluta
Framboðsfrestur fyirr kosningar til stjórnlagaþingsins sem verða 25.nóvember rennur út kl.12 n.k. mánudag. Þegar þetta er skrifað þá hafa 92 skráð framboð sitt til þingsins og af þeim. eru einungis 16 utan höfuðborgarsvæðisins, samkvæmt þeim lista sem birtur er á Wikipedia
Meira...
Föstudagur 15. október 2010
Fjölbrautaskóli Snæfellinga leitar eftir samstarfi
Starfsfólk FSN vinnur nú að stofnun nýrrar brautar við skólann. Vinnuheiti brautarinnar er Öryggis- og þjónustubraut og er stefnt að því innritun nemenda inn á brautina verði haustið 2012.
Meira...
Fimmtudagur 14. október 2010
Kreppan hefur veruleg áhrif í framhaldsskólum landsins
Út eru komnar niðurstöður rannsókna á líðan og
starfsumhverfi framhaldsskólakennara sem voru unnar af Guðrúnu Ragnarsdóttur
lýðheilsufræðingi, framhaldsskólakennara og kennslustjóra í Borgarholtsskóla í
samstarfi við Félag framhaldsskólakennara.
Meira...
Þriðjudagur 12. október 2010
Tap hjá Sundsvall
Hlynur Bæringsson og Sundsvall Dragons töpuðu í dag fyrir Solna í öðrum leik sínum í sænsku deildinni
98-96. Sigurkarfa Solna var skoruð á síðustu sekúndunni eftir að Hlynur hafði jafnað hinu megin. Hlynur stóð sig mjög vel að venju var með 22 stig og 18 fráköst og hæstur leikmanna beggja liða í framlagi með 35. Hlynur var einnig framlagshæstur í fyrsta leiknum var þá með 33.
Föstudagur 8. október 2010
Jól í skókassa í Stykkishólmi og Helgafellsveit
Nú er Jól í skókassa 2010 að fara af stað. Verkefnið felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að setja nokkra hluti í skókassa. Kassanum er síðan pakkað inn í jólapappír og útdeilt til þurfandi barna sem eru fórnarlömb stríðs, fátæktar, náttúruhamfara og sjúkdóma ...
Meira...
Mánudagur 4. október 2010
Snæfelli spáð 3. og 6.sæti
Kynningarfundur Körfuknattleikssambandsins fyrir komandi Íslandsmót í körfuboltanum var í dag á þeim fundi er hefð fyrir því að birta spá þjálfara, forráðamanna og fyrirliða liðanna í efstu deild karla og kvenna í körfunni spáðu fyrir lokastöðu Íslandsmótsins á komandi tímabili. Íslands- og bikarmeisturum Snæfells er spáð 3.sætinu hjá körlunum en Snæfellsstelpunum 5.sætinu.
Meira...
Síða 83 af 114:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 - 83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114