Föstudagur 10. september 2010
Síminn uppfærir adsl netsambandið
Undanfarna daga hefur Síminn verið að uppfæra adsl-netsambandið og auka við bandvíddina og hraða netsins á Snæfellsnesi, þannigð að nú er hann allt að 12 Mb/s. Í gær hafa þeir Hólmarar sem taka sjónvarpið í gegnum adsl -ið tekið eftir því að nú er Vod komið inn þannig að nú er mögulegt að leigja sér mynd í gegnum sjónvarpið og fer það þá á símreikning viðkomandi.
Meira...
Miðvikudagur 8. september 2010
Tékkar skoða Earth Check í Stykkishólmi
Mánudaginn 23. ágúst fékk starfsfólk ráðhússins í Stykkishólmi ríflega tuttugu manna hóp tékkneskra sveitarstjórnarmanna í heimsókn. Heimsóknin var hluti af ferð hópsins um Vesturland í þeim tilgangi að
kynna sér vinnu sveitarfélaganna í fjórðungnum að umhverfismálum.
Meira...
Mánudagur 6. september 2010
Fjórða sætið hjá strákunum
Fyrstu æfingamótin sem meistaraflokkar Snæfells taka þátt í fyrir tímabilið eru nú yfirstaðin. Stelpurnar höfnuðu í 2.sæti í Ljósanæturmótinu eftir 23-44 tap gegn KR í úrslitaleiknum. Strákarnir enduðu hinsvegar í 4.sæti á Reykjanes Cup eftir naumt tap 102-104 gegn Keflavík.
Meira...
Sunnudagur 5. september 2010
Evrópski menningarminjadagurinn - European Heritage day
Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn í dag sunnudaginn 5. september. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Magnús A. Sigurðsson minjavörður Vesturlands mun þá halda erindi í Ráðhúsinu í Stykkishólmi sem hann nefnir Neðansjávarfornleifafræði og strandminjar. Hvað má búast við að finna við Ísland?
Fyrirlesturinn hefst klukkan 14:00.
Meira...
Laugardagur 4. september 2010
Stelpurnar í 2.sæti
Snæfellsstelpurnar enduðu í 2.sætinu á hraðmótinu í Reykjanesbæ eftir að hafa unnið Hamar 52-45 í undanúrslitum en tapað svo úrslitaleiknum gegn KR 23-44. Strákarnir töpuðu hinsvegar fyrir Fjölni í gær 95-112. Þeir mæta því Keflavík sem vann Njarðvik í gær með 16 stigum, á morgun í leik um 3.sætið.
Föstudagur 3. september 2010
Fyrsta skólahúsbyggingin í Stykkishólmi
Ágæti lesandi.
Einhverjum kann að þykja það vera að bera í bakkafullan lækinn að skrifa meira um gömul hús í Stykkishólmi.
Nú háttar þannig til að í tengslum við síðustu sveitarstjórnarkosningar hér í Hólminum voru skólabyggingamál ofarlega á baugi og ...
Sjá aðsent efni
Föstudagur 3. september 2010
Fjórðungsþing Vestfirðinga hefst í dag
Fimmtugasta og fimmta Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett á Hólmavík kl. 10.30 í dag, föstudaginn 3. september, þingið mun standa fram á laugardag.
Meira...
Fimmtudagur 2. september 2010
Stykkishólmur fékk aðvörun
Stykkishólmur er eitt þeirra tólf sveitarfélaga sem fengu senda aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu. Það voru sveitarfélög sem eru með skuldir og skuldbindingar yfir 200% af heildartekjum sem fengu aðvörun og er Stykkishólmur þar nr.12 202% yfir heildartekjunum.
Meira...
Síða 87 af 116:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 - 87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114 -
115 -
116